Þriðjudagur 5. desember 2023

Biðja almenning um að skjóta EKKI upp neyðarsólum(fallhlífarblysum)

29.12.2020

ÁRAMÓT, FLUGELDAR OG SÓLIR–(sama tuðið-önnur áramót)
Að gefnu tilefni þá neyðumst við því miður að endurtaka þessi tilmæli ein áramótin enn.
Þar sem áramótin eru nú á næsta leiti viljum við enn og aftur biðja fólk um að sýna skynsemi og fara sérstaklega varlega með flugeldana, ekki síst hvað varðar staðsetningu og svo frágang eftir notkun.
-EKKI staðsetja nálægt brennanlegu efni, þurrum gróðri (eða bensíndælum )
-EKKI henda notuðum tertum í kör eða tunnur án þess að bleyta vel í þeim með vatni og slökkva allar glæður og elda.
-Nota hlífðargleraugu
SÍÐAST EN EKKI SÍST…..NEYÐARSÓLIRNAR
Sem fyrr vill slökkviliðið beina þeim eindregnu tilmælum til ALLRA þeirra sem hafa aðgang að svokölluðum neyðarsólum(fallhlífarblysum) að skjóta þeim EKKI UPP um áramótin eða Þrettándann, heldur koma t.d. útrunnum vörum í örugga eyðingu.
Þó svo að þessar sólir séu fallegar á himni þá eru því miður allt of mörg dæmi þess að þær falli logandi til jarðar þar sem þær halda áfram að brenna og hafa oft valdið miklum skaða á gróðri og mannvirkjum.
Vestmannaeyjabær og ÍBV íþróttafélag ætla að ganga á undan með góðu fordæmi í þetta skiptið og verður engum sólum skotið upp í tengslum við viðburði á þeirra vegum um áramót og þrettánda.
Verum því skynsöm og gefum slökkviliðinu og öðrum viðbragðsaðilum frí um áramót og þrettánda og völdum ekki óþarfa tjóni og slysum.
Bestu óskir um farsælt og gleðilegt nýtt ár segir að lokum i tilkynningu frá slökkiliði Vestmannaeyja.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is