Miðvikudagur 18. nóvember 2026

Bergur og Vestmannaey landa fullfermi í Eyjum

Ísfisktogarinn Bergur VE landaði fullfermi í Vestmannaeyjum í gær. Hann hélt til veiða strax að löndun lokinni og ræddi heimasíðan Síldarvinnslunnar við Ragnar Waage Pálmason skipstjóra í morgun en þá var skipið að veiðum á Sneiðinni. „Við lönduðum fullfermi í gær og var aflinn blandaður en mest þó af þorski og ýsu. Það var komið víða við í þessari veiðiferð. Við byrjuðum í Reynisdýpinu og á Vík, síðan var haldið á Síðugrunn og á Ingólfshöfðann. Við enduðum síðan á Öræfagrunni. Miðað við árstíma er ágætis nudd á þessum miðum en undanfarin ár höfum við venjulega verið búnir að færa okkur austur um þetta leyti. Nú sést hins vegar fiskur út af Suðurlandinu og því veiðum við áfram hér,“ segir Ragnar.

Vestmannaey VE landar fullfermi í Eyjum í dag. Aflinn er mest þorskur og ýsa. Heimasíðan ræddi við Egil Guðna Guðnason skipstjóra og spurði fyrst hvar veitt hefði verið. „Við byrjuðum túrinn á að leita að ufsa með afar litlum árangri. Leitað var á Síðugrunni, Öræfagrunni og Mýragrunni. Við fengum ýsu á Öræfagrunni og síðan þorsk á Ingólfshöfða og á Víkinni. Veiðiferðin gekk bara vel ef við strikum út ufsaleitina,“ segir Egill Guðni.

Vestmannaey mun halda til veiða á ný á morgun.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search