Berglind Björg á leið í frönsku úrvalsdeildina

Eyjamærin Berglind Björg Þorvaldsdóttir, framherji Breiðabliks, er á leið til franska úrvalsdeildarliðsins Le Havre og hefur líklega leikið sinn síðasta leik fyrir Breiðablik í bili.

Berglind staðfesti þetta við Vísi í kvöld en hún er á leið í læknisskoðun á fimmtudag. Ef allt gengur þar eftir óskum verður hún leikmaður franska liðsins á fimmtudag.

Le Havre tryggði sér sæti í frönsku úrvalsdeildinni í vor en liðið var í frönsku B-deildinni á síðustu leiktíð. Berglind Björg væri því annar leikmaðurinn í Frakklandi en Sara Björk Gunnarsdóttir leikur með Evrópumeisturum Lyon.

Þetta er mikill missir fyrir Breiðablik, sem er í mikilli baráttu við Val á toppnum í Pepsi Max deild kvenna, en Berglind hefur skorað tólf mörk í níu leikjum í sumar. Hún skorað sextán mörk í sautján leikjum á síðustu leiktíð.

Berglind lék í vor með AC Milan og raðaði þar inn mörkunum en hún segist hafa heyrt af áhuga Le Havre skömmu eftir veruna á Ítalíu. Þetta hafi svo gerst allt mjög hratt síðustu daga.

 

Vísir greindi frá þessu á vef sínum visir.is

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is