Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur úthlutað um 111 milljónum króna til umhverfisverkefna og reksturs félagasamtaka sem starfa að umhverfismálum á grundvelli umsókna. Ráðuneytið hefur veitt frjálsum félagasamtökum sem starfa að umhverfismálum rekstrarstyrki ásamt verkefna- og ferðastyrkjum frá árinu 2000, en til stendur að endurskoða úthlutunarreglur vegna styrkjanna.
Í ár hlutu 40 verkefni verkefnastyrk og nemur heildarupphæð styrkjanna tæplega 62 milljónum króna. Þar af er einn styrkur veittur til 2ja ára og tveir styrkir til 3ja ára.
Beluga Operating Company er meðal þeirra sem fengu styrk í ár.
Þá hefur ráðuneytið úthlutað 49 milljónum króna í rekstrarstyrki til 23 frjálsra félagasamtaka.
Fjölbreytt verkefni styrkt
Alls bárust ráðuneytinu 75 umsóknir um verkefnastyrki og var heildarupphæð umsókna 219,6 milljónir króna, þar af tæplega 165 milljónir fyrir árið 2022. Ná verkefnin sem hljóta styrki að þessu sinni ná yfir fjölbreytt svið skógræktar, hringrásarhagkerfis, náttúruverndar loftslagsverkefna, landupplýsinga, alþjóðlegs samstarfs og plastmengunar svo dæmi séu tekin.
Meðal þeirra verkefna sem nú hljóta styrki eru kortlagning aðlögunar Íslands að hringrásarhagkerfinu, vitundarvakning um fatasóun, endurhæfingastöð lundapysja, innleiðing stafrænnar kortlagningar skógræktar, sem og verkefni sem snúa að fuglalífi, víðernum og vindorku. Þá má einnig nefna landbætur, náttúrukort, ráðstefnur, málþing og fundi um ólík umhverfismál, sem og umhverfisfræðslu í ýmsu formi.
Markhóparnir sem verkefnin ná til eru allt frá eldri borgurum til ungmenna og allt þar á milli.
„Stjórnvöld leysa fá mál ein og óstudd og frjáls félagasamtök og einstaklingar geta innt af hendi mikilvægt starf í umhverfismálum og náttúruvernd. Bestu hugmyndir kvikna líka oft hjá þeim standa nærri vandanum, hafa skýra yfirsýn og brenna fyrir umbótum til að bæta sitt nærsamfélag,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. „Þess vegna er líka mikilvægt að geta stutt við verkefni innan þessara geira, sem ella myndu ef til vill ekki ná fram að ganga.“
Eftirtalin verkefni hlutu styrk að þessu sinni:
Beluga Operating Company – Endurhæfingarstöð lundapysja 2022 – 600.000 kr
David Ostman – A national standard and guidance on wind farm suitability in Iceland – 1.260.000 kr
Eldvötn – samtök um náttúruvernd – (Síðbúið) afmælismálþing í tilefni áratugar starfsafmælis Eldvatna – 600.000 kr
Environice ehf – Uppfærsla á Kennslubók um mengun sjávar – 600.000 kr
Ferðaklúbburinn 4×4 – Landbætur og aukið öryggi ferðamanna á hálendi Íslands – 780.000 kr
Fuglavernd – Alheimsráðstefna og aðalfundur BirdLife International – 350.000 kr
Fuglavernd – Fugl ársins 2022 – 1.700.000 kr
Fuglavernd – Skipulögð skráning flækingsfugla á Íslandi- framhaldsumsókn – 350.000
Jöklarannsóknafélag Íslands – Jöklasýn: Úr sögu Jöklarannsóknafélagsins í máli en aðallega myndum 2.000.000 kr
KPMG ehf. – Kortlagning aðlögunar Íslands að hringrásarhagkerfinu – 5.600.000 kr
Kvenfélagasamband Íslands – Vitundarvakning um fatasóun – 1.700.000 kr
Landvernd – Ferð vegna 27. þings aðildarríkja Loftslagssamnings SÞ – 600.000 kr
Landvernd – Ferðastyrkur norrænt samstarf – 350.000 kr
Landvernd – Ábyrgt ferðafrelsi – 570.000 kr
Landvernd – Erlend reynsla í Umhverfismálum – 1.550.000 kr
Landvernd – Náttúrubörn – 4.300.000 kr
Landvernd – Náttúrukortið – 2.780.000 kr
Laxfiskar – Fjölstofnavöktun á útbreiðslu og atferli Þingvallaurriða – 2.000.000 kr
LÍSA samtök um landupplýsingar – Erlent samstarf – 350.000 kr
Náttúruverndar-samtök Íslands – Ferðastyrkur: Alþjóðlegur samningur um verndun líffræðilegs fjölbreytileika sjávar – 850.000 kr
Náttúruverndar-samtök Íslands – Ferð vegna 27. þings aðildarríkja Loftslagssamnings SÞ – 600.000kr
Nicole Suehring – Plastplötur úr fiskinetum á Vestfjörðum – 1.000.000 kr
Plastlaus september félagasamtök – Plastlaus september – 4.000.000 kr
Sjónhending ehf – Í ríki Vatnajökuls – 6.000.000 kr
Skotveiðifélag Íslands – Alþjóðlegt samtarf – 350.000 kr
Skógræktarfélag Árnesinga – Þjóðleiðir sem gönguleiðir – 700.000 kr
Skógræktarfélag Eyfirðinga – Fræðslufundir, fræðslugöngur og pistlar um fróðleik -1.200.000 kr
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar – Skógrækt í Hamranesi, Hafnarfirði – 2.000.000 kr
Skógræktarfélag Íslands – Fundur European Forest Network á Íslandi – 1.245.000 kr
Skógræktarfélag Íslands – Innleiðing stafrænnar kortlagningar skógræktar – 2.900.000 kr
Skógræktarfélag Íslands – Opin skógur – umhirða eldri reita – 2.000.000 kr
Skógræktarfélag Íslands Skógarfólkið – 2.200.000 kr
Skógræktarfélag Rangæinga – Útivist fyrir alla! – 780.000 kr
Skógræktarfélag Reykjavíkur – Fræðsluskilti í Heiðmörk – 1.450.000 kr
Skrauti – Málþing um korlagningu víðerna Íslands – 500.000 kr
Surtseyjarfélagið – Friðlandið í Surtsey: rannsóknir og fræðsla – 500.000 kr
Ungir umhverfissinnar – Loftslagsverkfallið – 1.200.000 kr
Ungir umhverfissinnar – Ferð vegna 27. þings aðildarríkja Loftslagssamnings SÞ – 600.000 kr
Ungir umhverfissinnar – Kynningastarf Ungra umhverfissinna – 600.000 kr
Ungir umhverfissinnar – Sólin og svo kom Tunglið – 3.280.000 kr
Forsíðumynd: Halldór B. Halldórsson.

