Á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs, miðvikudaginn síðast liðin kom fram að barnaverndarbakvaktir verða, líkt og síðastliðin ár, starfræktar frá fimmtudagskvöldi til mánudagskvölds. Starfsmenn Fjölskyldu- og fræðslusviðs munu sinna bakvöktunum. Jafnframt samþykkir ráðið að semja við aðila um greiðslur fyrir að vera til taks til að veita börnum móttöku í bráðatilvikum ef þörf krefur.
Fjölskyldu- og tómstundaráð beinir því til foreldra og forráðamanna að börn undir 18 ára aldri eru ólögráða og á ábyrgð foreldra. Þetta gildir einnig um gestkomandi börn, þau þurfa að vera á ábyrgð fullorðinna einstaklinga.

