03.04.2020
Hjúkrunar-og dvalarheimilið Hraunbúðir langar að koma á fót sinni eigin bakvarðarsveit í Vestmannaeyjum vegna Covid-19 fari svo að brottfall verði mikið í hópi starfsmanna.
Leitað er að heilsuhraustum einstaklingum sem gætu aðstoðað við umönnunar-, eldhús- og ræstingarstörf.
Þeir sem áður hafa haft samband er bent á að senda staðfestingu aftur.
Þeir sem hafa áhuga vinsamlegast sendið nafn og símanúmer á hraunbudir@vestmannaeyjar.is ( eða s. 860 1030).
Ef þörf verður á að kalla eftir aðstoð mega þeir sem skrá sig eiga von á símtali.