11.06.2020
Bæjarstjórnarfundur verður haldinn í Einarsstofu í Safnahúsinu í dag og hefst hann kl. 18:00. Meðal þess sem er á dagskrá fundarins er kosning í ráð og nefndir, ljósleiðaramál, húsnæðismál, samgöngumál og breytingar á bæjarmálasamþykkt Vestmannaeyjabæjar.
Dagskrá fundarins er sem hér segir:
Dagskrá:
Almenn erindi
1. Kjör forseta og varaforseta skv. 7.gr. og kjör bæjarráðs skv. 44. gr. samþykktar um stjórn Vestmannaeyjabæjar og fundarsköp bæjarstjórnar
2. Ljósleiðaramál í Vestmannaeyjum
3. Húsnæðismál Vestmannaeyjabæjar
4. Breytingar á bæjarmálasamþykkt Vestmannaeyjabæjar
5. Umræða um samgöngumál
Fundargerðir til staðfestingar
6. Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja – 326
Liðir 1-6 liggja fyrir til staðfestingar.
7. Fræðsluráð – 331
Liðir 1-2 liggja fyrir til staðfestingar
8. Bæjarráð Vestmannaeyja – 3127
Liður 3, Húsnæðismál Vestmannaeyjabæjar, liggur fyrir til umræðu og staðfestingar. Afgreiðslu þessa máls var frestað á síðasta fundi bæjarstjórnar og er því tekin fyrir að nýju.
9. Fjölskyldu- og tómstundaráð – 246
Liður 1 liggur fyrir til staðfestingar