Miðvikudagur 27. september 2023
Blátindur - Tígull

Bæjarráð fór yfir afleiðingar óveðursins á fundi sínum í dag

17.02.2020

Í hádeginu í dag var farið yfir afleiðingar vegna óveðursins síðastliðin föstudag.

Aðfaranótt 14. febrúar síðastliðin var aðgerðarstjórn Almannavarna virkjuð vegna óveðurs sem gekk yfir Eyjarnar um nóttina.

Afleiðingarnar af óveðrinu voru meðal annars þær að bilanir urðu á rafmagnsflutningum Landsnets og rafmagn keyrt á varaafli allan föstudaginn og hluta laugardagsins.

Raforkunotkun heimila er 5-6 MW yfir vetratímann. Þegar full vinnsla er í fiskvinnslustöðvunum og verið er að frysta til dæmis loðnuafurðir er notkunin um 13 MW.

Þar sem aðeins rúm 4 MW eru til staðar sem varaafl í Eyjum, gefur augaleið að alvarlegt ástand getur myndast ef alvarleg bilun verður í flutningskerfi Landsnets á Suðurlandi. Atvinnulífið mun enga raforku fá og einnig þarf að skerða eða skammta raforku til heimila.

Töluvert tjón varð í tengslum við óveðrið. Eftir er að taka saman og greina kostnað vegna foktjóns.

Málefni Blátinds, sem losnaði úr stæði sínu og sökk í höfninni, verða tekin fyrir á fundi framkvæmda- og hafnarráðs sem haldinn verður á morgun.

Bæjarráð tekur undir með Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja sem á fundi sínum þann 7. febrúar síðastliðnum, lýsti þungum áhyggjum af stöðu varaafls í Vestmannaeyjum.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir fundi fulltrúa Landsnets og HS veitna, með atvinnulífinu og bæjarstjórn, til að upplýsa um ástandið og ræða næstu skref og aðgerðaáætlun til að bæta stöðu varaafls í Vestmannaeyjum.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is