Miðvikudagur 7. júní 2023
Björgunarsveit Vestmannaeyja

Bæjarbúar, eigendur fyrirtækja og allir sem staddir eru í Vestmannaeyjum eru beðnir um að taka veðurspánna alvarlega

Tilkynning vegna óveðursspár 13. febrúar 2020

Lögreglan í Vestmannaeyjum bendir á að afar slæm veðurspá er fyrir landið og hefur veðurstofan sett á appelsínugula viðvörun fyrir landið allt. Veðrið verður verst á spásvæði Suðurlands og þar eru Vestmannaeyjar undir. Spáð er austanátt, allt að 37 m/sek og mun meira í hviðum. Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir á öllu landinu. Almannavarnir eru í viðbragðsstöðu.

Bæjarbúar, eigendur fyrirtækja og allir sem staddir eru í Vestmannaeyjum eru beðnir um að taka þessa veðurspá alvarlega, tryggja lausamuni utandyra eins og kostur er og fara yfir húseignir sínar með tilliti til þess hvað getur farið af stað í óveðrinu. Þá er því beint til fólks að vera ekki ferðinni á meðan versta veðrið gengur yfir. Samkvæmt veðurspánni á versta veðrið að standa yfir frá kl. 05 á föstudagsmorgni og fram yfir hádegi. Reynsla okkar hefur þó kennt okkur að við fáum veðrið oft aðeins á undan því sem spáin segir.

Á meðfylgjandi mynd er textalýsing á því hvað appelsínugul viðvörun þýðir.

Tekið af facebook síður Lögreglunnar í Vestmannaeyjum

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is