Þriðjudagur 26. september 2023

Aukið svigrúm til kennslu í tónlistarskólum

23.11.2020

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að draga úr takmörkun á skólastarfi í tónlistarskólum og auka þannig svigrúm til tónlistarkennslu.

Tónlistarskólum verður heimilt að sinna einstaklingskennslu en halda skal 2 metra reglu milli starfsfólks og nemenda. Hámarksfjöldi verður sambærilegur og í grunnskólum; 25 hjá eldri nemendunum, þ.e. í 5.–10. bekk en 50 hjá yngri nemendum.

Tveggja metra reglan gildir um nemendur í 8.–10. bekk en ef víkja þarf frá henni skulu notaðar andlitsgrímur.

Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma í tónlistarskóla nema brýna nauðsyn beri til. Aðrir en starfsmenn sem koma í tónlistarskóla, svo sem vegna vöruflutninga, skulu bera andlitsgrímur.

Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar og búnað eftir hvern dag og milli einstaklinga og hópa í sama rými.

Reglugerðin hefur verið send Stjórnartíðindum. Hún tekur gildi við birtingu og gildir til og með 1. desember.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is