Laugardagur 17. október 2026

Átta túrar – sjö löndunarhafnir

Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu á Djúpavogi á sunnudaginn
Skipin voru kölluð inn til löndunar vegna þess að það vantaði fisk til vinnslu í vinnslustöðvar Vísis í Grindavík. Vestmannaey var með um 60 tonn og Bergey með 44 tonn en aflinn fékkst á Breiðamerkurdúpi, Lónsbugtinni og í Sláturhúsinu. Drjúgur hluti aflans var ufsi.
Að undanförnu hafa skipin landað víða
Bergey hefur landað í Vestmannaeyjum, Þorlákshöfn, Neskaupstað og á Djúpavogi en Vestmannaey hefur landað á hvorki fleiri né færri en sjö stöðum að loknum síðustu átta túrum. Löndunarstaðirnir eru Vestmannaeyjar, Neskaupstaður, Grundarfjörður, Hafnarfjörður, Grindavík og nú Djúpavogur. Arnar Richardsson, rekstrarstjóri Bergs – Hugins, segir að óvenju víða hafi verið landað en hafa beri í huga að sótt hafi verið á hin ýmsu mið víða við landið.
“Ég held ég geti fullyrt að skipin hafi aldrei landað í jafn mörgum höfnum á svo stuttum tíma. Ráðgert er að skipin landi á ný næstkomandi fimmtudag og þá er stefnt að löndun í Neskaupstað,” sagði Arnar.
Arnar sagði jafnframt að aflinn hjá togurunum tveimur í haust eða síðustu tvo mánuði hefði verið um 250 tonnum minni en á sama tíma í fyrra. Þorskaflinn hefði minnkað um rúmlega 400 tonn en hins vegar hefði meira verið veitt af karfa og ufsa. Þá benti hann á að veðurfar hefði ávallt áhrif á veiðarnar og hvar væri veitt.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search