Mánudagur 9. nóvember 2026

Átta ÍBV-peyjar í yngri landsliðunum

Átta ungir handboltamenn úr ÍBV eru á leið í verkefni með yngri landsliðum Íslands í þessari viku. Peyjarnir dreifast á fjóra aldursflokka, frá U15 upp í U21.

Andri Snær Óskarsson er í hópi U15 ára landsliðsins og með U17 ára liðinu verða Fannar Ingi Gunnarsson og Matthías Sigurðsson.

Þrír ÍBV-menn eru í U19 ára landsliðinu, þeir Anton Frans Sigurðsson, Morgan Goði Garner og Sigurmundur Gísli Unnarsson. Með U21 ára landsliðinu verða svo Jason Stefánsson og Magnús Dagur Jónatansson.

Félagið segist afar stolt af peyjunum og sendir þeim góðar kveðjur fyrir verkefnin fram undan. Tígull tekur undir það og óskar þeim öllum góðs gengis.

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search