Alls eru átta í framboði hjá Framsóknarflokknum í Suðurkjördæmi í prófkjöri sem fram fer 19. júní
Kosið verður um fimm efstu sætin á lista flokksins fyrir komandi alþingkosningar.
Kosið verður í lokuðu prófkjöri á 22 kjörstöðum vítt og breytt um kjördæmið. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla verður 15. júní, 16. júní og 18. júní. Kjörstaði má finna á framsokn.is. Talning fer fram 20. júní.
Framsókn náði tveimur þingmönnum á þing í Suðurkjördæmi í síðustu kosningum þeim Sigurði Inga Jóhannssyni, formanni Framsóknar, samgöngu og sveitarstjórnarráðherra og Silju Dögg Gunnarsdóttur alþingismanni.
Í framboði eru:
- Sigurður Ingi Jóhannsson, Hrunamannahreppi – sækist eftir 1. sæti
- Jóhann Friðrik Friðriksson, Reykjanesbæ – sækist eftir 2. sæti
- Silja Dögg Gunnarsdóttir, Reykjanesbæ – sækist eftir 2. sæti
- Daði Geir Samúelsson, Hrunamannahreppi– sækist eftir 2.- 4. sæti
- Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Árborg – sækist eftir 3. sæti
- Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Reykjanesbæ – sækist eftir 3.- 4. sæti
- Njáll Ragnarsson, Vestmannaeyjum – sækist eftir 3.- 4. sæti
- Ragnhildur Hrund Jónsdóttir, Vík í Mýrdal – sækist eftir 3.- 5. sæti
Forsíðumynd: Njáll Ragnarsson sem býður sig fram í 3.-4. sæti

