Miðvikudagur 6. desember 2023

Átta gefa kost á sér í fimm efstu sætin í forvali VG í Suðurkjördæmi

Átta gefa kost á sér í fimm efstu sætin í forvali VG í Suðurkjördæmi.

  • Almar Sigurðsson, ferðaþjónustubóndi og formaður svæðisfélags Vg í Árnessýslu,
  • Heiða Guðný Ásgeirsdóttir, bóndi og sveitarstjórnarmaður í Skaftárhreppi,
  • Hólmfríður Árnadóttir, skólastjóri og formaður svæðisfélags Vg á Suðurnesjum,
  • Kolbeinn Óttarsson Proppé, alþingismaður,
  • Róbert Marshall, leiðsögumaður, bjóða sig fram í fyrsta sæti.

Að auki bjóða sig fram:

  • Sigrún Birna Steinarsdóttir, háskólanemi og formaður Ungra Vinstri grænna sig fram í 2. – 3. sæti,
  • Helga Tryggvadóttir náms- og starfsráðgjafi í 2. – 5. sæti
  • Anna Jóna Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur í 3. – 5. sæti.

Nálgast má allar upplýsingar um forvalið á heimasíðu vg.is og heimasíðu VG í Suðurkjördæmi. sudur@vg.is

Kjörstjórn heldur þrjá formlega kynningarfundi með frambjóðendum á zoom og eru þeir auglýstir á vg.is.

Fyrstu tveir fundirnir eru opnir öllum, en sá síðasti er fundur ætlaður félögum í VG sem eru kjósendur í forvalinu.

Fyrsti fundurinn verður haldinn 16. mars, annar fundurinn verður 25. mars, 31. mars verða síðustu forvöð að skrá sig í VG til að taka þátt í forvalinu. Síðasti fundur kjörstjórnar með frambjóðendum sem er eingöngu ætlaður félögum í VG verður haldinn 8. apríl.

Forval VG í Suðurkjördæmi hefst klukkan 00.01 á miðnætti 10. apríl og lýkur klukkan 17.00 þann 12. apríl. Úrslit verða kunngjörð sama dag.

Forvalið er rafrænt og hægt er að kjósa með rafrænum skilríkjum eða íslykli á heimasíðu vg.is.

Úrslit forvalsins eru bindandi, að öðru leyti en því, að tryggja skal að ekki halli á konur á listanum. Þá skal tryggt að ekki séu færri en tvö af hvoru kyni í fimm efstu sætum listans. Kjörstjórn Suðurkjördæmis stillir svo upp 20 manna framboðslista að teknu tilliti til aldursdreifingar, kyns, búsetu, uppruna, starfs osfrv. þannig að listinn endurspegli samfélagið sem best.

Framboðslisti VG í Suðurkjördæmi verður lagður fram til samþykktar á kjördæmisþingi í maí.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is