Þriðjudagur 5. desember 2023
Bjarni Sigurðsson

Ásta Björk Guðnadóttir leysir af sem sérkennsluráðgjafi leikskóla

11.06.2020

Tekin hefur verið ákvörðun um að ráða Ástu Björk Guðnadóttur sem sérkennsluráðgjafa leikskóla til afleysingar í eitt ár. Mun hún hefja störf í ágúst.

Ásta Björk er leikskólakennari að mennt og hefur starfað meira og minna á leikskólum frá árinu 2004, m.a. á Sóla, Kirkjugerði og Víkinni. Hún hefur sinnt starfi deildarstjóra frá árinu 2010, fyrst á Kirkjugerði og nú á Víkinni frá árinu 2016. Þá hefur hún einnig sinnt starfi leiðsagnarkennara á Víkinni en í því felst m.a. umsjón með starfsnámsnemum og fagleg ráðgjöf við annað starfsfólk.

Sem deildarstjóri hefur Ásta Björk unnið töluvert með núverandi sérkennsluráðgjafa við að skipuleggja sérkennslumál innan deildarinnar og búa til áætlanir fyrir börn sem þurfa sérkennslu, aukaþjálfun eða stuðning.

Ásta Björk hefur allan sinn starfsferil haft mikinn áhuga á börnum með sérþarfir og er einn af tveimur stofnendum útibús ADHD félagsins í Vestmannaeyjum.

Forsíðumynd Bjarni Sigurðsson

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is