Um helgina fór fram Meistaramót Íslands 30 ára og eldri í Kaplakrika. Alls tóku 65 keppendur frá ellefu félögum þátt og var keppt í 12 greinum karla og kvenna og í hinum ýmsu aldursflokkum.
Ungmennafélagið Óðinn átti þar tvo fulltrúa, þær Kolbrúnu Önnu Rúnarsdóttur og Árný Heiðarsdóttur. Þær stöllur gerðu sér lítið fyrir og nældu sér báðar í tvenn gullverðlaun, í sínum aldursflokki, í 60 m hlaupi og kúluvarpi.
Þar til viðbótar náði Árný bestum árangri kvenna á mótinu þegar hún hljóp 60 m á 9,74 sekúndum í flokki 65-69 ára.





