Arnor Viðarsson stóð sig vel í leik dagsins í dag með U-18 þrátt fyrir tap.
U-18 ára landslið karla tapaði gegn Þjóðverjum í morgun á Sparkassen Cup í Þýskalandi, lokatölur 21-28.Á myndinni sjáum við markahæstu leikmenn íslenska liðsins en þeir Benedikt Gunnar Óskarsson og Arnór Viðarsson skoruðu 7 mörk hvor.
Íslenska liðið leikur síðari leik dagsins gegn Ítalíu kl 15.40, nánar um báða leikina á heimasíðu HSÍ í kvöld.
Greint er frá þessu á heimasíðu HSÍ