Fimmtudagur 8. október 2026

Arína Bára 17 ára dúx FÍV vorönn 2022

Arína Bára er aðeins 17 ára ung eyjamær og er því ári á undan jafnöldru sínum til að útskrifast úr framhaldsnámi. Hún hlaut verðlaun fyrir mjög góðan árangur í efnafræði á stúdentsprófi, Raungreinaverðlaun HR sem eru veitt fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum á stúdentsprófi og fyrir frábæran heildarárangur á stúdentsprófi en Arína var með 9,3 í meðaleinkunn.

Fullt nafn: Arína Bára Angantýsdóttir.

Foreldrar: Þórunn Ragnarsdóttir  og Angantýr Einarsson.

Systkini: Lísa Margrét Rúnarsdóttir, Einar Örn Angantýsson og Andri Þór Angantýsson

Ertu búin að ákveða hvað þú stefnir á að verða þegar þú verður stór? Ég væri til í að vinna hjá Össuri eða vinna við eitthvað sem tengist því að hjálpa dýrum.

Ætlar þú strax í áframhaldandi nàm? Já.

Í hvað skóla stefnir þú á að fara? HR (Háskólinn í Reykjavík)

Hvaða nám ætlarðu? Heilbrigðisverkfræði.

Hvernig er þín upplifun af FÍV? Það var yndislegt að vera í FÍV. Kennararnir eru mjög hjálpsamir og andinn er almennt mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt nám og það er vel skipulagt.

Uppáhalds kennari í FÍV? Verð nú að velja Gunnar Friðfinnsson tengdapabba minn þar.

Uppáhalds kennari í GRV? Ég var aðeins í GRV í 9. bekk en ég elskaði hana Láru.

Hvað var skemmtilegasta námsfagið þitt? Stærðfræði og tölfræði.

Eitthvað að lokum? Reynið ykkar besta þvi það mun skila sér.

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search