Orðsending frá Ara …
Sýningu í Vestmannaeyjum frestað til 15. janúar!
Því miður neyðumst við til þess að fresta sýningu Ara Eldjárn sem vera átti í Höllinni í Vestmannaeyjum annað kvöld, 13. nóvember. Sýningunni hefur verið frestað til laugardagsins 15. janúar næstkomandi. Ástæðan felst í breyttum sóttvarnarreglum sem taka gildi á miðnætti.
Miðar gilda áfram á nýrri dagsetningu og þurfa gestir ekkert að aðhafast frekar. Þeir sem kjósa að fá miða sína endurgreidda geta hins vegar sent póst á info@tix.is og verða þá miðarnir endurgreiddir um hæl.
Skipalyftan hefur einnig frestað afmælisboði sínu um óákveðin tíma, Stefán sagði að vonandi náum við að fagna þessu með vorinu.
Skilaboð frá Gísla Matt:
Vegna vaxandi fjölda smita hér í eyjum, og eftir fréttir dagsins höfum við ákveðið að fresta viðburðinum um óákveðin tíma.
Vonandi náum við halda þetta í desember.
Tilkynning frá Blítt og létt hópnum:
Eyjakvöldi sem halda átti í Höllinni í kvöld er aflýst vegna vaxandi smita í samfélaginu.