Í dag er eitt ár liðið frá því að fyrsta slátrunin fór fram hjá landeldisfyrirtækinu Laxey í Vestmannaeyjum. Frá þeim degi hefur verið slátrað í hverri einustu viku, 52 vikur í röð, að því er fram kemur í færslu Laxeyjar á Facebook.
Í færslunni segir að ótrúlega margt hafi gerst á þessu fyrsta ári og að margir mikilvægir áfangar hafi náðst. Eitt hafi þó lítið breyst: starfsfólkinu þyki alltaf jafn gaman þegar slátrunardagarnir renna upp. Laxey segir 52 vikur að baki og margar fleiri fram undan.
Uppbyggingin í Viðlagafjöru heldur áfram, en eins og Tígull sagði frá í gær er fiskur þegar kominn í fyrstu tankana í öðrum áfanga stöðvarinnar. Þegar sá áfangi er kominn í fulla notkun verður framleiðslugetan komin yfir 10.000 tonn af laxi á ári.
Myndir frá Laxey.







