Föstudagur 13. nóvember 2026

Ánægðir Eyjamenn!

Á gönguferð um helgina var ég að velta fyrir mér nýjum fréttum af því að Eyjamenn eru ekki aðeins ánægðastir allra landsmanna með búsetuskilyrði sín – heldur líka hamingjusamastir allra á Íslandi! Þá röðuðust upp í hausinn á mér ótrúlega margir jákvæðir hlutir sem hafa verið að gerast í Vestmannaeyjum síðustu misserin.

Nefnum nokkra af handahófi í belg og biðu – og ekkert endilega í réttri tíma- eða mikilvægisröð:

  • Ný nálgun við dýpkun Landeyjahafnar þar sem yfirlýst markmið er að halda henni opinni allt árið – og nú er að líða annar veturinn í röð þar sem höfnin hefur ekki lokast vegna sandburðar og grynninga.
  • Fyrsta skrefið tekið í heildarúttekt á Landaeyjahöfn með það fyrir augum að bæta hana til framtíðar.
  • Gerður nýr samningur um rekstur Herjólfs sem minnkar óvissu og áhættu bæjarins af rekstrinum.
  • Air Iceland Connect ákveður að hefja áætlunarflug til Eyja í apríl og það tókst að tryggja lágmarksflugþjónustu við Eyjar þangað til.
  • Samningar takast við Háskólann í Reykjavík og menntamálaráðuneytið um nám í íþróttafræðum á háskólastigi í Vestmannaeyjum.
  • Samningur gerður við menntamálaráðuneytið, Háskóla Íslands og Samtök atvinnulífsins um rannsóknar- og þróunarverkefni við Grunnskóla Vestmannaeyja.
  • Viljayfirlýsing undirrituð um gerð baðlóns í nýja hrauninu sem gæti orðið stórkostleg lyftistöng fyrir ferðaþjónustuna í bænum.
  • Samningar vonandi að takast við tvö ráðuneyti um að reka stafræna smiðju sem hluta af Þekkingarsetri Vestmannaeyja.
  • Ný samantekt sýnir að glæpatíðni er lægst í Vestmannaeyjum af öllum þeim stöðum á Íslandi sem kannaðir voru.
  • Vestmannaeyjabær stefnir í að vera rekinn með afgangi á síðasta ári – þrátt fyrir covid og loðnubrest – og gert ráð fyrir afgangi á þessu ári líka.
  • Og nú er loðnan komin eftir tveggja ára fjarveru!

Ég geri mér grein fyrir því að velgengni af því tagi sem hér er lýst er ekki endilega ávísun á aukna lífshamingju. En ég er viss um að hún hjálpar okkur Eyjamönnum til að brosa í kampinn – gleðjast yfir því sem hefur áunnist og horfa bjartsýn til þess sem er framundan.

Páll Magnússon

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search