21. september síðastliðinn var alþjóðlegi Alzheimerdagurinn. Við heyrðum því í Söru Rún Markúsdóttur, formanni Alzheimerfélagsins í Vestmannaeyjum og fengum smá fræðslu um starfið.
„Alzheimerfélagið í Vestmannaeyjum er lítið góðgerðafélag sem var stofnað árið 2016. Ég kom í félagið árið 2018 og er að taka við sem formaður núna árið 2022,“ sagði Sara Rún í samtali við Tígul.
„Ég byrjaði sjálf að mæta með afa mínum sem aðstandandi í Alzheimerkaffið árið 2018 og vorum við fljót að sjá hversu mikinn stuðning og fræðslu var að fá útúr því,“ sagði Sara Rún.
Hún sagði Alzheimerkaffið hafa verið í pásu síðastliðinn tæp tvö ár en vera að byrja aftur á fullu núna. „Við erum búin að halda eitt kaffi í september og stefnum á tvö í viðbót fyrir áramót ásamt því að halda bingó í desember. Á hverju kaffi er boðið upp á fræðslu sem tengist málefninu, söng og auðvitað kaffi og meðlæti.“
Þá sagði Sara Rún félagið vera með þrjá tengiliði hér í Eyjum sem alltaf er hægt að leita til en það eru Iðunn Jóhannesdóttir, Sigrún Hjörleifsdóttir og Þórdís Gyða Magnúsdóttir og hafa þær leiðbeint mörgum fjölskyldum í gegnum þetta ferli. „Viðar prestur hefur einnig verið með aðstandendafundi í kirkjunni þar sem aðstandendur geta komið saman og rætt sín á milli. Það er mikil þörf á stuðning við aðstandendur þar sem sjúkdómurinn hefur áhrif á fleiri en þann veika. Við höfum í gegnum árin stutt vel við Hraunbúðir og spítalann og gefið þangað allskonar hjálpartæki og fræðslu fyrir starfsfólk.
Á Hraunbúðum var útbúin sérhæfð eining fyrir einstaklinga með heilabilun og aðra þunga hjúkrunarsjúklinga. Alzheimerfélagið tók þátt í því og aðstoðaði við að kaupa ýmis hjálpartæki fyrir fólk með heilabilun.“
Í Vestmannaeyjum er einnig nýtilkomin dagdvöl með fimm sérhæfð dagdvalarrými og er nýr starfandi iðjuþjálfi þar, ásamt breytingum á aðstöðunni. „Við sem félag leggjum mikið upp úr stuðning við þann veika og fjölskyldu hans og hvet ég fólk að hafa samband við okkur ef það eru einhverjar spurningar. Einnig langar mig til að hvetja sem flesta að mæta á kaffi hjá okkur, þetta er fyrir alla sem vilja fræðast meira og vera í góðum félagsskap.“
Bendi einnig á facebook síðuna okkar : https://www.facebook.com/alzheimerstudningsfelagveyjar

