Miðvikudagur 6. desember 2023

Alvarleg líkamsárás í nótt

25.08.2020

Tilkynning frá lögreglu:

Síðastliðna nótt var framin alvarleg líkamsárás í Vestmannaeyjum en ráðist var á mann á fertugsaldri með einhverju áhaldi og hlaut hann alvarlega áverka af árásinni. Þetta kemur frá á facebooksíðu lögreglunnar í Vestmannaeyjum.

Sá er ráðist var á kannaðist ekki við árásarmanninn og sagði hann hafa verið með andlitið hulið, þannig að hann þekkti hann ekki.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu þá er árásarmaðurinn um 190 cm á hæð, grannvaxinn og líklega dökklæddur.

Árásin átti sér stað á götunni sunnan við vestustu raðhúsalengjuna í Áshamri á milli kl. 02:00 og 02:15 og eru þeir sem urðu varir við árásina eða grunsamlegar mannaferðir í bænum sl. nótt beðnir að hafa samband við lögregluna í Vestmannaeyjum í síma 444 2091 eða á facebooksíðu lögreglu. Einnig er hægt að hafa samband með tölvupósti í póstfangið vestmannaeyjar@logreglan.is.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is