Meistaraflokkur ÍBV sækir heim Stjörnuna í TM-Höllinni í dag kl. 16.00 í öðrum leik liðanna í 6 liða úrslitum Olís-deildar kvenna. Stjörnustúlkur sóttu góðan sigur í Eyjum og því er allt undir hjá ÍBV í þessum leik. Tvo sigra þarf til að tryggja sér sæti í undanúrslitum og dugir Eyjastúlkum því ekkert annað en sigur til að knýja fram oddaleik.
Það er því lítið annað í boði en að fjölmenna í Garðabæinn og styðja stúlkurnar.
Strákarnir hefja svo viðureign sína við Hauka í undanúrslitum í Hafnafirði á morgun og er enn hægt að skrá sig í hópferð á hann.

