Umsóknarfrestur fyrir starf hafnarstjóra Vestmannaeyjahafnar var til og með 16 febrúar síðast liðin.
Í upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ bárust alls sex umsóknir um starfið.
Einn dró umsókn sína til baka þar sem ekki var hægt að verða við beiðni um nafnleynd.
Umsækjendur um starfið eru því fimm talsins:
- Andrés Þorsteinn Sigurðsson, yfirhafnsögumaður og skrifstofustjóri
- Dóra Björk Gunnarsdóttir, kennari og fyrrv. framkvæmdastjóri
- Guðni Grímsson, vélstjóri og verkstjóri
- Sigurður Ingason, sérfræðingur
- Sindri Ólafsson, ritstjóri