04.04.2020
Alls safnaðist 1.080.300 krónur í „kvenfólk í eyjum“ söfnuninni og eru þær búnar að kaupa 10 spjaldtölvur, 10 þráðlaus heyrnatól, 7 nuddtæki ( axlar, bak og fætur ) 10 hlífar fyrir spjaldtölvurnar, 2 blóðþrýstimæla, 2 súrefnismettunarmæla og 1 magnara fyrir fólk sem er með heyrnatæki svo þau geti notað tölvurnar og heyrnatólin.
Svo er komin ábending að það vanti loftdýnu á hraunbúðir sem Helga er að athuga með og fær hún svör eftir helgi með það.
Það sem er eftir af peningnum er 460.070.- krónur.
Að lokum segir Helga Henrietta Åberg: Gefum okkur stórt klapp og munum að vera góð við alla.