01.04.2020
Fræðsluráð hélt fund í dag í Ráðhúsinu
Umsóknir í Þróunarsjóð leik- og grunnskóla 2020 voru afgreiddar.
Um er að ræða metnaðarfull og áhugaverð verkefni, fjögur frá kennurum í GRV og tvö frá leikskólakennurum í samstarfi við Sóla.
Fræðsluráð hefur farið yfir og afgreitt umsóknirnar og er heildarupphæð sem veitt verður úr sjóðnum árið 2020 kr. 3.325.000
Umsóknum verður svarað á allra næstu dögum.