Sunnudag 3.nóvember er Allra heilagra messa en þá er látinna ástvina minnst í kirkjum landsins. Landakirkja er þar engin undantekning og munum við minnast þeirra sem hafa kvatt síðastliðna tólf mánuði í Vestmannaeyjum.
Tendruð verða ljós fyrir hvern og einn og munum við biðja fyrir ástvinum okkar og minningum okkar tengdum þeim.
Allir eru velkomnir, sér í lagi þeir sem misst hafa ástvin á árinu.
Mynd: Helgi R. Torzhamar