Af gefnu tilefni langar okkur að vekja athygli á eftirfarandi. Þegar bornar eru saman auglýsingar sem Vestmannaeyjabær kaupir í fjórum fjölmiðlum í Vestmannaeyjum er rétt að benda á að þeir eru mismunandi. Eyjafrettir.is, eyjar.net og tigull.is eru fréttamiðlar og koma á framfæri fréttum, viðburðum og öðru sem sem gerist í Vestmannaeyjum.
Þegar kemur að prentútgáfu koma þrjú ólík blöð reglulega út sem erfitt er að bera saman. Mismunandi efni, stærð á blöðum, fjöldi eintaka, mismunandi dreifing og eitt af blöðunum er í áskrift. Tígull og Sjónvarpsvísir sem koma út vikulega og Eyjafréttir sem koma út aðra hverja viku. Tígli er dreift í öll hús og fyrirtæki í Vestmannaeyjum og víðar. Sjónvarpsvísi er dreift í helstu verslunum í bænum en Eyjafréttir eru áskriftablað. Tígull eru aðgengilegur á netinu án greiðslu en hægt er að kaupa áskrift að Eyjafréttum á netinu. Sjá nánar hér fyrir neðan:
