Aglow fundur á morgun

 

Næsti Aglow fundur verður miðvikudagskvöldið 1. mars kl. 19.30 í betri stofu safnaðarheimils Landakirkju.

Í janúar og febrúar ræddum við um ýmislegt í tengslum við að um þessar mundir eru fimmtíu ár frá eldgosinu 1973. Margar tilfinningar komu upp á yfirborðið. Næsta miðvikudagskvöld ætlum við að fjalla um hvað við berum með okkur frá fyrri kynslóðum. Við líkjumst foreldrum okkar í útliti en við erfum einnig margt innra með okkur. Því getur verið ágætt að skoða fjölskyldusöguna og með meiri þekkingu getum við rofið þá vítahringi sem við erum flæktar í. Fyrir stuttu talaði sr. Hildur Eir Bolladóttir um þetta efni í útvarpinu og er hægt að hlusta á netinu; RUV / útvarp / dagskrá / þri. 14. febrúar kl. 6.45 / Morgunbæn og orð dagsins. Vera Björk Einardóttir og Þóranna M. Sigurbergsdóttir
munu segja nokkur orð um efnið en þær hafa báðar lokið sálgæslunámi. Þetta efni var til umfjöllunar þar. Við munum ræða um þessi mál og verður tækifæri fyrir spurningar, vangveltur og umræður. Alþjóðlegur bænadagur kvenna er fyrsta föstudag í mars og verður samkoma í húsi Hjálpræðishersins við Suðurlandsbraut í Reykjavík föstudaginn 3. mars kl. 18.00. Efni bænadgsins kemur frá konum í Taívan og ætlum við í Eyjum að fara yfir efni bænadagsins á Aglow fundi 3. maí. Eins og hindin þráir lindir lifandi vatns, þráir sál mín þig, ó Guð minn. Sál mína þyrstir eftir Guði, lifandi Guði…..Sálm 42.2

Við hlökkum til að skjá ykkur sem flestar og allar konur velkomnar.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is