Föstudagur 13. nóvember 2026

Afar góð veiði hjá Bergs-Hugins og Bergur VE

Ísfisktogarar Bergs-Hugins og Bergur VE hafa verið að fiska vel að undanförnu.

Bergur landaði fullfermi í Þorlákshöfn á fimmtudag og er aftur að landa fullfermi í Eyjum á mánudaginn var. Skip Bergs-Hugins, Vestmannaey VE og Bergey VE, fóru út á föstudag og lönduðu fullfermi á þriðjudag. Síðan er gert ráð fyrir að Eyjarnar báðar komu svo í land í gær og lönduðu.

Síldarvinnslan.is sló á þráðinn til Birgis Þórs Sverrissonar, skipstjóra á Vestmannaey á mánudaginn og spurði fyrst hvort hann væri ekki ánægður með vertíðina.

„Jú, það má segja að góðri vertíð sé að ljúka. Það hefur fiskast vel og vertíðin hefur verið ótrúlega fín veðurfarslega séð. Ég held að þetta sé einhver besti vetur hvað veður varðar sem ég man eftir. Við lönduðum fullfermi í gær eftir stuttan túr. Við byrjuðum í Háfadýpinu og tókum þar ýsu og lýsu og síðan var farið á Selvogsbankann og fyllt með þorski. Bergey var á sama róli – við tvíburarnir fylgjumst að. Núna erum við vestast á Selvogsbanka í mjög góðri veiði. Það eru allar lokanir búnar nema kolalokanir sem taka enda 1. maí. Annars er að síga á síðasta hluta vertíðarinnar. Þorskurinn er hryngdur og byrjaður að ganga af, en það er allt morandi í ýsu. Við erum bara hressir hér um borð og ánægðir með fiskiríið sem hefur verið,“ segir Birgir Þór.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search