Þriðjudagur 17. nóvember 2026

Af hverju Ísland? – Nýtt hlaðvarp

Klaudia Beata Wróbel, fjölmenningarfulltrúi Vestmannaeyjabæjar og Drífa Þöll Arnardóttir starfsmaður Bókasafns eru að fara af stað með nýtt hlaðvarp/podcast. Við Tígulskonur hittum þær til að forvitnast um hvað það væri.

 

Hvað getið þið sagt okkur um podcastið? Hlaðvarpið heitir Af hverju Ísland? Við tökum viðtöl við Íslendinga af erlendum uppruna um reynslu þeirra af því að flytja til landsins.

 

Um hvað er það? Það fjallar um af hverju fólkið valdi að flytja til Íslands, hvernig það gekk, hvernig var að læra nýtt tungumál og aðlagast nýju samfélagi. Við heyrum líka sögur frá upprunalandinu sem okkur þykja líka mjög spennandi. Einhverjir viðmælendur er fólk sem á annað foreldri af erlendum uppruna en hitt íslenskt og svo langar okkur að tala líka við fólk af annarri kynslóð innflytjenda. Við viljum heyra fjölbreyttar sögur. Svo inn á milli tökum við kannski upp þætti þar sem við fjöllum um málefni samfélagsins alls en með áherslu á innflytjendur. Við erum enn að þróa okkur áfram.

 

Hvernig kom þessi hugmynd til? Hugmyndin að podcastinu kom uppúr áramótum. Við vorum að ræða um hvað við gætum gert til að gera samfélag innflytjenda sýnilegra og gera innfæddum Íslendingum kleift að kynnast lítillega fólki af erlendum uppruna. Við gerðum stutt myndbönd fyrir jólin þar sem við tókum viðtöl við fólk af 4 þjóðernum sem búa hér í Eyjum um jólasiðina í heimalandinu. Þau voru birt á Youtube á rásinni okkar Vestmannaeyjar – Fjölmenning og svo dreifðum við þeim á facebook í kjölfarið. Þessi myndbönd vöktu athygli og okkur fannst það svo skemmtilegt og fræðandi að við vildum fara lengra með hugmyndina og þá kom hugmyndin að podcastinu upp. Íslenska þjóðin er orðin svo margbreytileg og það auðgar mannlífið og við teljum að það að heyra af venjulegu fólki með alls konar bakgrunn geri öllum gott.

 

Hvernig gengur að fá viðmælendur? Það gengur bara vel að fá viðmælendur. Við höfum hingað til bara tekið viðtöl við fólk sem býr hér í Eyjum en þegar lengra frá líður þá langar okkur til að færa út kvíarnar og heyra sögur fólks annars staðar af Íslandi. Draumurinn er að fá til okkar í viðtal Elizu Reid forsetafrú enda er hún örugglega frægasti Íslendingurinn sem er af erlendum uppruna.

 

Fyrir hverja er þetta? Þetta er fyrir alla sem hafa áhuga á fólki. Viðtölin fara fram á íslensku svo að markhópurinn er íslenskumælandi fólk.

 

Hversu mörg hlaðvörp ætlið þið að gefa út? Við leggjum upp með að gera 24 þætti til að byrja með en þegar við frægðin bankar upp á þá vonandi getum við haldið áfram að eilífu.

 

Á hvaða dögum kemur þetta og hversu ört? Þættirnir koma á miðvikudögum og stefnan er að nýr þáttur komi á tveggja vikna fresti.

 

Hver er fyrsti viðmælandi? Það voru nú hæg heimatökin þar. Við erum auðvitað algjörir nýgræðingar í þessu og til að æfa okkur þá tók Drífa viðtal við Klaudiu sem flutti til Íslands frá Póllandi 11 ára gömul.

 

Viljið þið kynna næsta viðmælanda? Næsti viðmælandi hefur búið í Eyjum lengi og man tímana tvenna. Það er hún Ruth Zohlen, hún hefur frá mörgu að segja og við erum mjög spenntar að fá hana til okkar.

 

Hlaðvarpið/podcastið er komið á helstu hlaðvarpsveitur og hægt er líka að finna hlaðvarpið á audioboom.com. Við setjum viðtölin inn á Youtube rásina Vestmannaeyjar – Fjölmenning. Svo erum við á Instagram: Af hverju Ísland? og á facebook: Af hverju Ísland? podcast og svo er hægt að senda okkur tölvupóst á afhverjuisland@gmail.com. Við viljum gjarnan fá viðbrögð frá hlustendum og ábendingar um áhugaverða viðmælendur.

 

Við þökkum Drífu og Klaudiu fyrir spjallið og óskum þeim alls hins besta!

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search