25.11.2020
Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á sjö spásvæðum og gilda þær bæði í dag og á morgun.
„Í dag hvessir af suðaustri og þykknar upp, fyrst um landið vestanvert. Í kvöld má búast við að vindstyrkur verði kominn víða upp undir stormstyrk (20 m/s). Dálítil óvissa er hve hratt hlýnar en það hefur mikil áhrif á hvaða úrkomutegund verður á láglendi.
Líklegast er að úrkoman byrji sem snjókoma eða slydda en færist síðan yfir í rigningu á láglendi. Mestu hlýindin verða samt ekki fyrr en eftir miðnætti og fram undir morgun, en þá snýst vindur jafnframt til suðvestanáttar. Hún verður ekki eins hvöss og úrkomumikil eins og veðrið verður í nótt, en um og eftir hádegi á morgun er útlit fyrir að vindur verði víða 15-20 m/s og hvassari í éljum og þá hefur einnig kólnað talsvert frá morgninum.
Á fjallvegum, einkum á vestanverðu landinu verður ekki eins hlýtt svo að bæði má reikna með að úrkoma fari seinna yfir í rigningu í kvöld eða nótt og eins kólnar fyrr þar á morgun svo að öll úrkoma fellur þar sem él á morgun.
Föstudagurinn verður líklega nokkuð svipaður morgundeginum en fer þó að lægja undir kvöld.
Æskilegt er að fólk ani ekki út í óvissuna því útlit er á að élin verði bæði dimm og mjög hvöss,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Vedur.is, mbl.is ,forsíðumynd skjáskot af vedur.is