Staðan á endurbótum skólalóða GRV og Kirkjugerðis
Á næstu vikum verður haldið áfram með endurbætur á skólalóðinni við Hamarsskóla. Þar verður komið upp m.a. ærslabelgi, stölluðu útikennslusvæði og bættu undirlagi.
Á austurlóð leikskólans Kirkjugerðis verður svæðið drenað og undirlag lagað eins og kostur er. Í ár er gert ráð fyrir fjármagni upp á 20 milljónum til umræddra framkvæmda. Þegar er búið að kaupa töluvert af leiktækjum og undirlagi sem bíður uppsetningar.
Þetta kemur fram á fundi fræðsluráðs sem haldinn var síðasta fimmtudag.

