Aðgerðastjórn Almannavarna Vestmannaeyja vilja benda íbúum Vestmannaeyja á að mjög slæm verðurspá er nú fyrir Eyjar aðfaranótt mánudags 07.02.
Vindur verður af austri og gera spár ráð fyrir vindi allt að 30 m/sek. Með þessu er búist við mikilli snjókomu fram undir morgun. Þegar líður á morguninn mun vindátt snúast í suðvestan hvassviðri með éljagangi.
Hætta er á rafmagnstruflunum í þessu veðri og einnig ófærð á götum. Þá er hætta á truflunum á samgöngum milli lands og Eyja. Rétt er að benda íbúum á að huga að lausum munum við húsin sín. Einnig er verktökum bent á að fara yfir sín vinnusvæði og fergja lausa muni.
Frekari tilkynning verður send út á morgun þegar frekari verðurspá kemur frá Veðurstofunni.
Hægt er fylgjast með veðurspánni á vef Veðurstofu Íslands: Vindaspá | Suðurland | Veðurstofa Íslands (vedur.is)

