11.11.2020
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins undirritaði í dag samning við lyfjafyrirtækið Pfizer um kaup á 200 milljónum skammta af bóluefni fyrirtækisins við COVID-19 með möguleika á 100 milljón skömmtum til viðbótar.
Íslandi er tryggður sami aðgangur að bóluefnum sem Evrópusambandið semur um og aðildarríkjum sambandsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði í samtali við mbl.is í gær að fréttir af bóluefnaframleiðslu Pfizer og BioNTech væru ánægjulegar og vissu á gott, væntanlega væri hægt að ljúka faraldrinum með tilkomu rétta bóluefnisins.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðargreiningar, sagði í samtali við mbl.is í gær, að vitað hefði verið um nokkra hríð að bóluefnið væri á leiðinni. Flest benti til þess að bóluefnið væri gott. Hann taldi aðspurður að líf hér á landi gæti orðið eðlilegt upp úr miðju næsta ári.