Að liggja inn á Landspítalanum deild A7 er lífsreynsla sem maður gleymir seint

08.04.2020

Blaðamaður Tíguls heyrði í Arnari Richardssyn sem er kominn aftur til Eyja eftir mikla lífsreynslu. Arnar er hægt og rólega að ná bata, hann er í einangrun í íbúð í Eldey og horfir yfir túnið heim til sín. Hann þarf að vera einkennalaus í 7 daga svo að hægt verði að útskrifa hann en hann er enn veikur með einkenni svo þetta mun taka einhverjar vikur í viðbót.

Arnar greindist með Covid-19 þann 22. mars og þar sem hann er viðkæmur í lungum þá lagðist þetta þungt á hann og endaði með því að hann var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Hann deildi á facebooksíðu sinni í gærkvöldi lífsreynslu sinni okkur hinum til varnaðar og vonar hann innilega að allir taki þessu sem dauðans alvöru og haldi sig heima yfir páskana og þar til þetta gengur yfir.

Hérna eru skrif hans síðan í gær:

Kæru vinir

Eins og flest ykkar eflaust vita þá hef ég átt í baráttu við þennan fjárans vírus sem herjar á samfélög heimsins. Þann 22 mars greinist ég með Covid-19 vírus og var ég búinn að vera veikur í tvo daga, en áður hafði ég haft einkenni í ca 10 daga.

Ég er fyrir með Astma og í fyrstu var þetta bara hefðbundin hósti eins og ég er vanur að fá en 20. mars fór þetta versnandi. Ég var töluvert veikur í 6 daga mikill hiti, mjög mikill hósti, smá mæði og algerlega máttlaus. Ég átti erfitt með það eitt að tala og best var að liggja útaf, þegja og reyna að sofa þetta úr sér.

Sunnudaginn 29. mars er ég bara nokkuð hress og átti bara nokkuð auðvelt með tal og því fylgdi ekki þessi hóstaköst eins og verið hafði. Á Þessari viku hafði ég verið í sambandi við hjúkrunarfræðinga og lækna en einnig fékk ég þrjár heimsóknir frá okkar frábæru læknum og sjúkraflutningamönnum hér í eyjum sem komu og tóku stöðuna.

Mánudaginn 30. mars vakna ég með mikið mæði og er mjög andstuttur, það verður úr að ég fer upp á spítala þar sem teknar eru lungnamyndir og koma þær ekki vel út, greinilegar bólgur í báðum lungum. Í framhaldi er ég sendur í sjúkraflug til Reykjavíkur og lagður inn á deild A7 sem er deild fyrir Covid-19 sjúklinga.

Að liggja inn á Landspítalanum deild A7 er lífsreynsla sem maður gleymir seint. Starfsfólk þar er ekki övundsvert að vinna í þessum aðstæðum og í öllum þessum hlífðarfatnaði.

Annars var Prógramið á spítalanum ekki svo flókið 2 æfingar 5 sinnum á dag.
1. Anda inn um nefið, setja stút á munninn og blása 10 endurtekningar
2. Anda inn um nefið, halda andanum niðri í 3 sec og tæma hressilega 3 endurtekningar.

Þetta er ekki erfitt dags daglega en þarna var þetta bara mjög erfitt.

Eftir dvölina á A7 er mér eftst í huga kærleikurinn og hugulsemin hjá Sjúkraliðum og Hjúkrunarfræðingum. Þetta fólk er einstakt, að það skuli leggja sig í hættu við það eitt að þér líði betur er ómetanlegt og hreinlega ólýsanlegt.

Eins og Ragnheiður Gröndal skilgreindi orðið ÁST hjá Helga Björns = Anda,Slaka,Treysta Þetta á svo vel við um ástandið á spítalanum, þar eru allir að reyna að ná andanum bæði sjúklinar og starfsfólkið með sínar grímur, eins þarf að slaka á þess á milli, sjúklingarnir leggja allt sitt traust á starfsfólkið sem gerir allt fyrir þig.

Í dag var ég svo fluttur aftur á eyjuna fögru. Heilsan er öll að koma til og vonandi verð ég orðinn fullfrískur eftir 1-2 vikur.
Takk allir þeir sem sendu mér kveðjur og skilaboð sl. vikur

Ps. Hlýðum Víði þetta dauðans alvara.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is