Í gærmorgun hélt A landslið kvenna til Vestmannaeyja en landsliðið mun æfa í Eyjum þar til á morgun þegar liðið heldur í höfuðborgina þar sem stelpurnar okkar halda áfram æfingum fram á sunnudag. Hópurinn nýtir tímann vel í eyjum og æfir liðið tvisvar á dag og fundar með þjálfarateyminu.
Landsliðið undirbýr sig í þessari æfingaviku fyrir tvo leiki gegn Ísrael í forkeppni HM 2023. Leikirnir fara báðir framá Ásvöllum 5. og 6. nóvember nk.


