Miðvikudagur 27. september 2023
Tígull

Á flótta undan veðri

05.11.2020

Ísfisktogararnir Gullver NS, Bergey VE og Vestmannaey VE eru allir í höfn í dag, en veðrið hefur verið slæmt að undanförnu.

Gullver kom til Seyðisfjarðar í morgun með um 45 tonn og Vestmannaey kom til Neskaupstaðar með um 20 tonn.

Heimasíð Síldarvinnslunnar heyrði hljóðið í Birgi Þór Sverrissyni skipstjóra á Vestmannaey. „Við vorum úti í rúma tvo sólarhringa og það var sannkallað drulluveður. Vegna veðursins gekk heldur treglega að veiða en við tókum þó ein sex hol. Við byrjuðum úti í Hvalbakshalli en hröktumst síðan norður eftir undan veðrinu.

Við færðum okkur líka í gær af kantinum og upp á grunnslóðina en þar var veðrið heldur skárra. Það spáir vitlausu veðri aftur í dag og á morgun þannig að það er líklega best að hafa hægt um sig.

Síðan held ég að eigi að koma einhver pása. Það má alltaf eiga von á svona veðurfari á þessum árstíma og menn verða bara að sætta sig við það en við vitum að það þarf að hafa næði til að finna fiskinn,“ segir Birgir Þór.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is