Eyjabíó sýnir tvær myndir í dag, sunnudag. Fyrst er það barnamyndin Hvolpasveitin klukkan 15:00 og svo Hvar er draumurinn sem hefst klukkan 20:00.
Hvolpasveitin: Risaeðlumyndin (íslenskt tal)

Hvolpasveitin lendir á dularfullri risaeðlueyju eftir storm og hitta Rex, hvolp sem er þar fastur. Þegar glæfraleg námuvinnsla Humdingers kemur af stað eldgosi stendur sveitin frammi fyrir sinni stærstu björgunaraðgerð til þessa – að bjarga eyjunni.
Tegund: Ævintýri, Teiknimynd, Fjölskyldumynd, Hasar
Hvar er draumurinn?

Hvar er draumurinn? gerist í Reykjavík snemma á tíunda áratugnum og segir frá Bjarti, rótlausum ungum manni sem á lítið nema vinahóp sinn og skemmtistaðinn Sódóma. Þegar staðurinn stendur frammi fyrir lokun ákveða vinirnir að gera allt sem þeir geta til að bjarga honum. Á sama tíma bankar ástin upp á úr óvæntri átt þegar Bjartur kynnist Hófí, ungri stúlku sem lifir í allt öðrum veruleika. Hvar er draumurinn? er söngvamynd byggð á lögum hljómsveitarinnar Sálarinnar hans Jóns míns – tónlistardrifin saga um ást, vináttu, gleði og sorg.
Tegund: Tónlistarmynd
Aldurstakmark: Leyfð

