Föstudagur 23. október 2026
Huginn VE vsv

Fínasta kolmunnaveiði

Umsjónamaður vefs Síldarvinnlunar sló á þráðinn til Tómasar Kárasonar, skipstjóra á Beiti NK, á mánudaginn og spurði frétta af kolmunnaveiðinni á gráa svæðinu. „Héðan er allt gott að frétta. Hér er fínasta veiði. Við erum núna komnir með yfir 2.000 tonn í fjórum holum og erum nú á okkar fimmta holi í túrnum. Síðasti sólarhringur var mjög góður en þá fengum við hátt í 1.800 tonn í þremur holum. Í fyrrinótt fengum við 620 tonn, um 600 tonn um hádegi í gær og 540 tonn í nótt. Þetta voru allt stutt hol eða frá sex og upp í níu tíma. Stundum er dregið mun lengur eða allt upp í 16 tíma. Þetta er fínasti fiskur sem fæst hérna, þessi dæmigerði göngufiskur. Við erum núna við svonefndaan Wyville Thompson-hrygg og hér eru flestir bátarnir en svo eru einnig bátar norðar. Það verður að segjast að þetta lítur býsna vel út núna og menn eru kátir hér um borð,“ segir Tómas.

Börkur NK er einnig á miðunum og er að fiska vel. Hákon EA kom til Neskaupstaðar sl. nótt og er að landa. Vilhelm Þorsteinsson EA er á leið til Neskaupstaðar með fullfermi. Bjarni Ólafsson AK landaði í Neskaupstað í gær og er á leiðinni á miðin. Það er semsagt mikið um að vera.

Forsíðan er af Huginn VE

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search