Fimmtudagur 21. september 2023

89 skólar og 2000 myndir bárust í teiknisamkeppni MS – 2 myndir unnu frá GRV

Keppnin er haldin í tengslum við Alþjóðlega skólamjólkurdaginn ár hvert en mikill spenningur hefur verið meðal nemenda undanfarnar vikur enda úrslitanna beðið með mikilli eftirvæntingu

Líkt og undanfarin ár naut dómnefnd liðsinnis mennta- og menningarmálaráðherra en Lilja Dögg Alfreðsdóttir tók þátt í valinu á verðlaunamyndunum fjórða árið í röð. Að sögn Lilju Daggar báru myndirnar vott um öflugt og faglegt myndmenntarstarf í skólum landsins og hrósaði hún bæði nemendum og kennurum fyrir að leggja svona hart að sér og senda einstaklega fjölbreyttar og fallegar myndir í keppnina.

2000 myndir frá 89 skólum

Tæplega 2.000 myndir bárust í keppnina í ár frá 89 skólum og ljóst að öll fyrri þátttökumet hafa verið slegin en að jafnaði hafa innsendar myndir verið um 1.000-1.500 talsins. Tíu myndir voru valdar úr þessum mikla fjölda og hafa skólastjórnendur í viðkomandi skólum verið færð gleðitíðindin. Verðlaunahöfum eru veitt viðurkenningarskjöl fyrir teikningar sínar og til viðbótar er hver mynd verðlaunuð með 40.000 kr. peningagjöf frá Mjólkursamsölunni. Verðlaunaféð rennur óskipt í bekkjarsjóð viðkomandi og getur bekkurinn nýtt þá upphæð í að gera sér glaðan dag saman og efla liðsheild í samráði við umsjónakennara og skólastjórnendur.

„Myndefnið er frjálst en ákveðin hefð hefur skapast í gegnum árin og óhætt að segja að kýr, íslenska sveitin og mjólkurfernur og séu vinsælustu viðfangsefnin hjá nemendum,“ segir Gréta Björg Jakobsdóttir, markaðsfulltrúi MS og einn af fulltrúum í dómnefnd keppninnar. „Í ár er ein verðlaunamyndin innblásin af verknum listamannsins Andy Warhols, sem nemendur höfðu lært um, og einstaklega gaman að sjá hvernig stíllinn hans blandast saman við hugmyndir teiknaranna.“

Vinningshafar í teiknisamkeppninni skólaárið 2020-2021 eru:

Áróra Nielsen, Breiðagerðisskóla
Ellen Amina Ingadóttir, Fellaskóla Reykjavík
Hekla María Þórhallsdóttir, Vatnsendaskóla
Helena Emma Árnadóttir og Leanne Yslah G. Leósdóttir, Ísaksskóla
Kolbrún París Kristjánsdóttir, Sæmundarskóla
Milena Mihaela Patru, Grunnskóla Vestmannaeyja
Mía Bjarný Haraldsdóttir og Hlín Huginsdóttir, Grunnskóla Vestmannaeyja
Óskar Gunnar Styrmisson, Mýrarhúsaskóla
Unnur Amalía Sverrisdóttir, Fossvogsskóla
Ylfa Kristín Bjarnadóttir, Álfhólsskóla

Dómnefndin þakkar 4. bekkingum kærlega fyrir þátttökuna og óskar vinningshöfum og skólunum þeirra innilega til hamingju.

Meðfylgjandi er mynd af dómnefndinni og vinningsmyndum ársins, en allar myndir verða jafnframt birtar á vef verkefnisins skolamjolk.is.

Ylfa Kristín Bjarnadóttir, Álfhólsskóla
Unnur Amalía Sverrisdóttir, Fossvogsskóla
Óskar Gunnar Styrmisson, Mýrarhúsaskóla
Mía Bjarný Haraldsdóttir og Hlín Huginsdóttir, Grunnskóla Vestmannaeyja
Milena Mihaela Patru, Grunnskóla Vestmannaeyja
Kolbrún París Kristjánsdóttir, Sæmundarskóla
Helena Emma Árnadóttir og Leanne Yslah G. Leósdóttir, Ísaksskóla
Hekla María Þórhallsdóttir, Vatnsendaskóla
Ellen Amina Ingadóttir, Fellaskóla Reykjavík
Áróra Nielsen, Breiðagerðisskóla
Steinunn Þórhallsdóttir, Guðlín Ósk Bragadóttir, Lilja Dögg Alfreðsdóttir og Gréta Björg Jakobsdóttir með verðlaunamyndirnar.

Greint er frá á vef ms.is

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is