Jón Pétursson framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs fór ítarlega yfir nýjar reglur um félagslega leiguíbúðir á vegum Vestmannaeyjabæjar á síðasta fundi fjölskyldu- og fræðsluráðs á fimmtudaginn 4. mars.
Með félagslegu leiguhúsnæði er átt við:
- Almennt félagslegt leiguhúsnæði sem ætlað er fjölskyldum og einstaklingum sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum félagslegra aðstæðna, þungrar framfærslubyrgði og lágra launa.
- Húsnæði fyrir fatlað fólk er íbúðarhúsnæði sem gert hefur verið aðgengilegt fyrir tiltekna notkun eða skilgreint sérstaklega fyrir tiltekinn hóp fatlaðs fólks. Húsnæðin skiptast annars vegar í sértækt húsnæði fyrir fatlað fólk (þjónustuíbúðarkjarna) og hins vegar í húsnæði með stuðningi.
- Leiguhúsnæði fyrir aldraða er leiguhúsnæði ætlað fólki 67 ára og eldra þar sem núverandi húsnæði hentar ekki lengur sökum félagslegra aðstæðna, þungrar framfærslubyrgði, lágra tekna og heilsufarsvanda og önnur úrræði í búsetumálum fást ekki.
- Þjónustuíbúðir aldraðra er leiguhúsnæði sem sérstaklega er ætlað öldruðum sem þurfa töluverða aðstoð og stuðning til að geta búið á eigin heimili.
Vestmannaeyjabær hefur yfir að ráða um 70 íbúðum sem skiptist misjafnlega niður eftir fyrrgreindum skilgreiningum.
Forsíðumynd: Halldór B. Halldórsson