Þriðjudagur 5. desember 2023
Heiðar Egilss

65 milljónir í nýtt áhersluverkefni Sóknaráætlunar Suðurlands á vegum SASS

29.04.2020

Til stuðnings ferðaþjónustunni á Suðurlandi vegna COVID-19 veirunnar

Verkefnið Sóknarfæri ferðaþjónustunnar er nýtt áhersluverkefni Sóknaráætlunar Suðurlands á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS). 

Stjórn SASS samþykkti á fundi sínum 22. apríl s.l. að hrinda verkefninu af stað til að styðja við starfandi fyrirtæki í ferðaþjónustu á Suðurlandi, sem orðið hafa fyrir tekjutapi vegna fækkunar ferðamanna á Íslandi vegna COVID 19. Heildarframlag SASS til verkefnisins eru 65 m.kr, að því er segir í frétt á vef SASS. Verkefnið skiptist í þrjá eftirfarandi verkþætti:

  • Stuðningur við markaðssókn landshlutans gagnvart innlendum ferðamönnum í sumar sem unnið verður að á vegum Markaðsstofu Suðurlands. Verkefnið fylgir áherslum ríkisins um að styðja við innlenda ferðaþjónustu á þessu ári. Rekstraraðilar og sveitarfélög eru hvött til að taka þátt í átakinu og auka þar með slagkraft þess. Heildarframlag SASS til þessa átaks er 8 m.kr.
  • Stofnun nýs samkeppnissjóðs Sóknaráætlunar Suðurlands undir heitinu Sóknarfæri ferðaþjónustunnar. Þar sem fyrirtæki í ferðaþjónustu og fyrirtæki sem hafa megin tekjur sínar af ferðamönnum og ferðaþjónustu geta sótt um verkefnastyrki að fjárhæð 500 þ.kr. Samhliða því af fá styrk mun fyrirtækjum standa til boða handleiðsla og ráðgjöf á vegum SASS, aðgengi að sérfræðiþjónustu og sérsniðinni fræðslu út frá þörfum umsækjenda. Til úthlutunar í formi verkefnastyrkja verða samtals 48 m.kr og markmiðið er að styðja 96 fyrirtæki.
  • Fræðsla og miðlun þekkingar til ferðaþjónustufyrirtækja, s.s. sérhæfð námskeið og sérfræðiþjónusta til handa styrkþegum sem tengjast úrræðinu hér að framan. Auk þess verður boðið upp á ýmiss opin námskeið, fyrirlestra og stuðningsefni. Heildarkostnaður fræðsluþáttarins er áætlaður 8 m.kr. Auk kynningar á átakinu 1 m.kr.

Viltu taka þátt í að kynna áfangastaðinn Suðurland?

Fyrirtæki eru hvött til að vinna að markaðssetningu gagnvart innlendum ferðamönnum í sumar. Rekstraraðilar eru hvattir til að setja sig í samband við Markaðsstofu Suðurlands og taka þátt í kynningarverkefnum þeirra fyrir landshlutann. Fyrirtæki geta jafnframt sótt um styrk hjá SASS til að vinna að slíkum verkefnum.

Viltu sækja um verkefnastyrk?

Nýr sjóður hefur verið settur á laggirnar í tengslum við áhersluverkefnið og geta fyrirtæki í ferðaþjónustu sótt um verkefnastyrki til að vinna að eigin verkefnum. Opið verður fyrir umsóknir í sjóðinn til kl. 16:00 þann 12. maí næst komandi. Úthlutunarreglur og nánari upplýsingar eru að finna á vef SASS. Eru fyrirtæki hvött til að nýta sér úrræðið og setja sig í samband við ráðgjafa á vegum SASS. 

Forsíðumynd Heiðar Egilsson

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is