Laugardagur 17. október 2026

Sælkeri vikunnar: Þorbjörn Víglundsson

Grilluð nautalund með soðsósu og hasselback kartöflum

Ég vill þakka Alberti fyrir áskorunina. Hann fylgist greinilega vel með matreiðslu snöppunum mínum, Úti að grilla með Tobba Villa. En ég mun svo verða með vikulega grillþætti í sumar, ef það kemur sumar.

Ég ætla ekki að koma með eins flókna uppskrift og Albert (veit ekki í hvaða blaði hann fann þessa uppskrift), enda þarf góður matur ekki að vera flókinn.

1 stk nautalund, snyrt og sinin skorin frá. Sker hana svo í um tommu þykkar sneiðar. Set hana í dall með einni flösku af Caj P grillolíu, pipra og salta aðeins og gott er að rífa híði af sítrónu eða lime með. Þetta læt ég standa í ísskáp í tvo daga og tek út morguninn sem á að grilla og læt standa á borði.

6 stk bökunarkartöflur sem græjaðar eru Hasselback stæl. Pensla með ólífuolíu og salta yfir. Bakaðar í ofni við 180 ‘c í ca 45-60 mín. Gott að hafa kryddsmjör með.

Í sósuna nota ég það sem skorið var frá við snyrtinguna á lundinni. Set það í pott með olíudreytil og brúna aðeins. Því næst set ég 1 stk lauk, og kjarnann, toppinn og stöngulinn af papriku (paprikuna sjálfa nota ég í salat) set það í pottinn og steiki aðeins. Næst fer 1 tsk af Lamb Islandia kryddblöndu frá Pottagöldrum út í pottinn. Steiki aðeins og bæti svo um 1 ltr af vatni. Sýð þetta niður þar til ég hef um ½ ltr af soði. Á meðan þetta sýður mýki ég lauk og papriku sneiðar á pönnu sem ég svo set út í sósuna eftir að hún er klár. Sigta soðið frá og set í annan pott. Bæti út í 1 msk tómatpúrru, nautakrafti (2 msk af fljótandi eða tveimur teningum). Sýð þetta upp og bæti svo í rjóma, dekki og þykki svo með sósujafnara. Bæti paprikunni og lauknum út í.

Nú er sósan klár og þá er ekkert annað eftir en að grilla kjötið. Munið bara að hafa grillið funheitt og grilla kjötið ekki of lengi.

Með þessu hef ég einnig grillaðan aspas og ferskt salat. Drekk með þessu rauðvín og hef kaffi og Bailyes í eftirrétt.

Ég ætla að skora á Svein Ásgeirsson Skvísubúðar kóng og sjóara sem næsta matgæðing vikunnar.
Hann er einstaklega lipur með grilltangirnar og hefur reytt fram ótrúlegustu veislur af grillinu.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search