Miðvikudagur 27. september 2023

6.000 tonn af makríl komin í hús

07.07.2020

Makrílvertíðin hefur verið sveiflukennd en í heildina tekið gengur hún samkvæmt áætlun. Við höfum tekið við um 6.000 tonnum til vinnslu frá og með fyrstu löndun 12. júní,“ segir Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar.

„Vertíð byrjaði vel, svo kom kafli þar sem veiði var dræm en meiri kraftur færðist í þær undanfarna tvo sólarhring. Landað var úr Huginn í gær (mánudag), í dag er landað úr Kap og Ísleifur bíður löndunar.“

Huginn hélt til veiða á nýjan leik seint í gærkvöldi og var nú síðdegis suður af Vestmannaeyjum.

„Við fengum 90 tonn í holli í nótt en eftir það hefur verið rólegt,“ sagði Guðmundur Huginn Guðmundsson skipstjóri.

„Hér er blíðuveður og það teljast kjörstæður til að ná makrílnum.“

Greint er frá þessu á vef vsv.is

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is