Fimmtudagur 15. október 2026

40 ár síðan pelagus strandaði við Eyjar

Belgíski togarinn Pelag­us strandaði við Vest­manna­eyj­ar aðfaranótt 21. janú­ar 1982.

Hann rak upp í fjöru og lá und­ir 12-15 metra háum hamra­vegg í foráttu­brimi. Þetta var fyr­ir 40 árum, þar sem fjór­ir menn fór­ust, er frá­sagn­ar­efnið í Útkalls­bók Ótt­ars Sveins­son­ar. Með góðfús­legu leyfi Ótt­ars er hér stutt­lega gripið niður í þá ör­laga­ríku at­b­urðarás sem greint er frá í bók­inni:

Um klukk­an 03.40 – Mátt­vana í brim­inu
Skip­verj­arn­ir fjór­ir á Lóðsin­um höfðu ekki orðið þess var­ir þegar gúmbát­ur­inn frá Pelag­usi var sjó­sett­ur í myrkr­inu. Nú ræddu þeir það sín á milli að sigla bátn­um að Pelag­usi og láta stefnið, sem var klætt hjól­börðum, stuðpúðum, nema við Pelag­us. En sjó­lagið virt­ist vera of þungt til þess að það gæti gengið með góðu móti og Lóðsinn gæti eitt­hvað at­hafnað sig.

Veiðarfæri og laust dót frá Pelag­usi flaut um allt á sjón­um. Ein­ar skip­stjóri hafði ákveðið að bakka bátn­um frá strandstaðnum til að vera ekki of ná­lægt og eiga á hættu að fá veiðarfær­in í skrúf­una. Hann ætlaði því að láta skip sitt liggja fyr­ir utan strandstaðinn, fylgj­ast vel með, vera í sam­bandi við björg­un­araðila og lýsa svo Pelag­us upp eins vel og hægt væri þegar björg­un­ar­sveit­ir kæmu á slysstað.

Klukk­an 03.48 bað Ein­ar um sam­band í gegn­um tal­stöð við Krist­in Sig­urðsson slökkviliðsstjóra og bað hann að sjá til þess að Hjálp­ar­sveit skáta yrði ræst út. Ein­ar sagðist telja að best væri fyr­ir björg­un­ar­menn að fara leiðina með fram „Haug­un­um“ og þaðan niður á klapp­ir með fram Eld­felli.

Bart velkt­ist enn um í sjón­um og var orðinn von­lít­ill um að hann héldi þetta út miklu leng­ur:

„Ég sá að fé­lag­ar mín­ir stóðu inni und­ir hval­bakn­um. Þeir­kölluðu í mig og nú kom enn ein stór alda – ég hélt dauðahaldi í bandið á bátn­um. Það skipti svo eng­um tog­um, þessi risa­alda skolaði gúmbátn­um og mér inn að þilfar­inu, stjórn­borðsmeg­in á Pelag­usi, alla leið að tæki sem þvoði fisk­inn áður en hann var sett­ur niður í lest. Ég sleppti tak­inu á bátn­um og lá nú mátt­vana í sjón­um á þilfar­inu.

Gusta­af skip­stjóri kom strax og togaði mig til sín inn und­ir hval­bak­inn. Mér létti mikið við að vera kom­inn aft­ur til skips­fé­laga minna og bað Red­gy há­seta að lána mér hníf­inn sinn til að skera frá mér björg­un­ar­vestið. Pat­rick var hvergi sjá­an­leg­ur – ég óttaðist að við ætt­um ekki eft­ir að sjá hann aft­ur á lífi. Þetta var mjög sorg­legt, hann var aðeins nítj­án ára, átti kær­ustu og þau ætluðu að fara að gifta sig. Hann hafði sagt okk­ur það.“

Klukk­an 03.50 var búið að hafa sam­band við Krist­in Sig­urðsson, slökkviliðsstjóra og formann Björg­un­ar­fé­lags Vest­manna­eyja. Hann lét konu sína, Guðrúnu Bjarnýju Guðjóns­dótt­ur, hafa sam­band við Elías Bald­vins­son varaslökkviliðsstjóra og biðja um að lög­regl­an kallaði út bæði og A- og B-flokka slökkviliðsins.
Björg­un­ar­fé­lags­menn yrðu beðnir um að koma niður í Bása á Bása­skers­bryggju í aðal­stöðvar Björg­un­ar­fé­lags­ins þar sem tæki fyr­ir sjó­björg­un voru geymd. Jafn­framt hafði verið óskað eft­ir því að Hjálp­ar­sveit skáta yrði kölluð út.

Lög­reglumaður hafði sótt Jón Ísak Sig­urðsson hafn­sögu­mann og þeir óku aust­ur á hraun, eins langt og hægt var að kom­ast ak­andi, að norðurenda Presta­vík­ur, beint aust­ur af Eld­felli.

Ein­ar á Lóðsin­um var áfram í sam­bandi við skip­stjóra Am­andine. Hann vildi árétta þau skila­boð til hans að biðja áhöfn Pelagus­ar að halda kyrru fyr­ir um borð uns hjálp bær­ist frá björg­un­ar­mönn­um úr landi. Áhöfn Lóðsins fannst mjög hart að geta ekk­ert annað aðhafst til að koma belg­ísku skip­brots­mönn­un­um til bjarg­ar.

Fimm skip­brots­mann­anna, frá vinstri: Red­gy Calcoen, 26 ára, Bart Gulpen, 17 ára, Marcel An­seeuw, 51 árs, en þetta var í annað sinn sem hann komst af í skipskaða við Ísland, Daniel Rouzee vél­stjóri og Roland Bill­ia­ert stýri­maður, sem sýndi mikið þrek í bar­áttu skip­verj­anna fyr­ir lífi sínu. Ljósmynd: Sigurgeir Jónasson. 

Pelagus slysið. Ljósmynd: Sigurgeir Jónasson.Vest­manna­eyj­ara­díó hafði til­kynnt Kristni slökkviliðsstjóra að hafn­sögu­bát­ur­inn kæm­ist ekki að Pelag­usi og að strandstaður­inn væri fyr­ir sunn­an Presta­bót:

„Ég vissi nú hvers kyns var, að skipið væri strandað á mjög slæm­um stað þar sem erfitt yrði að koma björg­un­ar­tækj­um á strandstað. Ég hraðaði mér nú að Bás­um en kon­an mín hélt áfram að hringja í menn til aðstoðar. Þegar ég kom að Bás­um voru nokkr­ir menn komn­ir þangað.

Þá voru öll tæki sett á bíla og haldið suður að Presta­bót. Við höfðum fengið þær upp­lýs­ing­ar að besta leiðin á strandstað væri um Haug­ana og aust­ur fyr­ir nýja hraunið. Þrátt fyr­ir það taldi ég mig vita um bestu leiðina á strandstað og valdi hana. Björg­un­ar­sveit­ir höfðu haft æf­ingu á þess­um stað og þá kynnt­umst við staðhátt­um. Enn frem­ur hafði ég fylgst með þegar þetta hraun varð til og taldi mig því þekkja það.“

Bart Gulpen hafði bjarg­ast með naum­ind­um – það var ein­skær heppni að bátn­um skyldi skola aft­ur um borð. En Pat­rick Maes, nítj­án ára há­seti, hafði drukknað. All­ir í áhöfn­inni vissu nú að hann kæmi ekki aft­ur um borð á lífi.

Skip­brots­menn­irn­ir voru miður sín, en verst leið Roland Bill­ia­erd stýri­manni því að móðir Pat­ricks hafði beðið Roland sér­stak­lega að gæta hans áður en þeir sigldu að heim­an frá Ost­ende.
Skip­stjór­inn hafði greini­lega tekið ranga ákvörðun þegar hann skipaði mönn­um sín­um að sjó­setja gúmbát­inn. Bart skalf á bein­un­um á feysknu þilfari Pelagus­ar:

„Ég var gegndrepa og kald­ur inn að beini enda var ég bara í peysu, inn­anund­ir­bux­um og á sokk­un­um. Ég fékk öðru hverju sjó yfir mig þegar brimið skall á skip­inu, lá þarna á þilfar­inu fyr­ir fram­an dyrn­ar að bakk­an­um, þar sem veiðarfæra­geymsl­an var inni í hval­bakn­um. Ég fór að huga að því að forða mér frá ágjöf­inni og kom­ast í skjól.“

Sig­urður Þórir Jóns­son var 32 ára starfsmaður hjá Vest­manna­eyja­höfn, slökkviliðsmaður og í stjórn Hjálp­ar­sveit­ar skáta á eynni:
„Þegar við mætt­um niður á slökkvistöð um nótt­ina feng­um við að vita hvað hefði gerst. Við vor­um ekki viss­ir um það hvort út­kallið væri verk­efni fyr­ir slökkviliðið eða björg­un­ar­sveit­ir, en þar sem Björg­un­ar­fé­lagið var held­ur fáliðað var ákveðið að fara á strandstað með þeirri sveit og með þau tæki sem til þurfti. Ég ákvað að renna upp í bækistöð Hjálp­ar­sveit­ar­inn­ar og sækja VHF-tal­stöð og galla mig upp. Við ókum svo eins langt aust­ur á Urðir og unnt var.“
Bart var að niður­lot­um kom­inn. Hann taldi, eins og fleiri um borð, að í þess­um aðstæðum gæti ekk­ert orðið þeim til bjarg­ar nema kannski þyrla. Þeir þekktu ekki starfs­hætti ís­lenskra björg­un­ar­manna sem voru van­ir að skjóta línu út í skip á strandstað og nota björg­un­ar­stóla til að bjarga skip­brots­mönn­um í land.

Sjö menn úr átta manna áhöfn­inni voru enn á lífi. Daniel Rouzèe, 27 ára vél­stjóri, og Roland Bill­ia­erd, 34 ára stýri­maður, sem var mjög vel á sig kom­inn lík­am­lega, ákváðu að klifra upp lóðrétt­an stiga upp á hval­bak skips­ins bak­borðsmeg­in, sem sneri næst landi, og var sá staður þar sem brimið gekk minnst yfir.

Gusta­af Brys skip­stjóri, 41 árs, ákvað að fara inn í veiðarfæra­geymsl­una und­ir hval­bakn­um og með hon­um fóru fjór­ir aðrir skip­verj­ar, þeir Gil­bert Stevel­inck, sautján ára, Bart Gulpen, sautján ára, Red­gy Calcoen, 26 ára og Marcel An­seeuw, 50 ára. Bart var loks­ins að kom­ast í skjól:
„Mér var óskap­lega kalt og nú fór ég inn í veiðarfæra­geymsl­una und­ir hval­bakn­um. Ég var veik­ur, hafði gleypt mikið af sölt­um sjó þegar ég var næst­um drukknaður stuttu áður, og var kald­ur og skjálf­andi, í gegn­blautri peysu, bux­um og á sokka­leist­un­um. Gusta­af skip­stjóri var fyrst inni í bakk­an­um hjá mér, Gil­bert, Red­gy og Marcel, en Daniel vél­stjóri og Roland stýri­maður fóru upp á hval­bak­inn til að kanna hvort björg­un­ar­menn gætu verið á leiðinni. Roland var ein­stak­lega góður sjó­maður, sterk­ur og traust­ur.“

Um klukk­an 4.30 – Klöngr­ast yfir stór­grýt­is­urð
Um þrjá­tíu björg­un­ar- og slökkviliðsmenn frá Heima­ey höfðu skipt með sér tækj­um og búnaði til að bera á slysstað. Krist­inn slökkviliðsstjóri var kom­inn þangað sem bíl­arn­ir staðnæmd­ust:

„Þegar komið var á Presta­bót var tækj­um skipt niður á menn­ina sem báru þau áleiðis á strandstað, um 700 metra leið yfir stór­grýt­is­urð og bruna­hraun. Í þess­um fyrsta leiðangri tel ég að um 30 menn hafi verið mætt­ir, fé­lag­ar úr Björg­un­ar­fé­lag­inu og Slökkviliði Vest­manna­eyja. Ég lagði af stað á strandstað þegar öll tæki voru far­in nema síðasti kass­inn, en í hon­um var til­drátt­ar­taug­in.“

Sig­urður Þ. Jóns­son var á leið á slysstaðinn:
„Við klöngruðumst í myrkr­inu yfir nýja hraunið. Það var erfitt yf­ir­ferðar og við héld­um á línu­byss­um, björg­un­ar­stól og öðrum búnaði. Við vor­um ekki vel bún­ir ljós­um en þegar við nálguðumst slysstað sást ljós­geisli frá lóðsbátn­um fyr­ir utan. Áhöfn­in virt­ist vera að lýsa upp strandstaðinn. Okk­ur gekk sæmi­lega að finna leið og mér fannst við vera með vel skipað og þjálfað lið.

Það hafði tekið tíma að gera allt klárt í bæn­um og kom­ast út eft­ir. Við sáum að stefni skips­ins var komið upp í urðirn­ar en aft­ur­end­inn sneri út á haf. Held­ur meira sást í bak­borðssíðuna úr landi. Það var myrk­ur og frem­ur hvasst, rign­ing blönduð særoki og nær eng­in lýs­ing um borð – við sáum mönn­um bregða fyr­ir við brú­ar­væng tog­ar­ans bak­borðsmeg­in.“

Um borð í Lóðsin­um höfðu menn aldrei komið auga á gúmbát­inn sem áhöfn Pelagus­ar hafði sjó­sett. Ágúst Bergs­son vél­stjóri rýndi í gegn­um myrkrið og ágjöf­ina út að strandstaðnum:
„Við hefðum ör­ugg­lega reynt að ná gúmbátn­um ef við hefðum séð hann. Þarna voru sjó­menn í bráðri lífs­hættu og við vor­um mest að hugsa um hvað við gæt­um mögu­lega gert. Auðvitað leið okk­ur illa yfir því að geta ekki komið til hjálp­ar en okk­ur létti dá­lítið þegar við viss­um að björg­un­ar­sveit­in væri kom­in og þeir væru að byrja að koma flug­línu­tækj­um fyr­ir. En Guð minn al­mátt­ug­ur – maður var svo ráðalaus! Það eina sem við gát­um gert var að lýsa upp slysstaðinn með köst­ur­un­um okk­ar.“

Grill­ir í menn á hval­bakn­um
Guðmund­ur Ólafs­son var 23 ára slökkviliðsmaður sem starfaði á verk­stæði í Vinnslu­stöðinni í Vest­manna­eyj­um. Hann var með fyrstu mönn­um á strandstað:

„Lóðsbát­ur­inn lónaði fyr­ir utan, þeir höfðu kallað og sagt að það væri mjög erfitt og von­lítið að at­hafna sig við strandstaðinn. Við þurft­um að ganga yfir nýja hraunið í kol­svarta­myrkri. Þegar við kom­um á strandstaðinn sáum við að skipið var mjög stutt frá landi og það gaf mikið yfir það. Ég sá nú grilla í menn uppi á hval­bakn­um, eina hluta skips­ins sem fór ekki al­gjör­lega í kaf þegar brot­in riðu yfir skipið.“

Sig­urði Þ. Jóns­syni fannst erfitt að at­hafna sig á strandstað:
„Þetta var blautt og svart og erfitt að fóta sig í hraun­inu. Við kom­um nú búnaðinum fyr­ir á klett­um sem stóðu hærra en fram­endi tog­ar­ans, um fimmtán metra fyr­ir ofan sjáv­ar­mál. Ég kallaði í Lóðsinn í tal­stöðinni og þeir lýstu í átt­ina að okk­ur. Það hjálpaði, en við feng­um auðvitað geisl­ann beint í aug­un.“

Krist­inn Sig­urðsson slökkviliðsstjóri hafði lagt af stað frá bíln­um áleiðis að strandstað þegar öll tæk­in sem nota átti við björg­un­ina voru kom­in af stað með mönn­un­um yfir hraunið, nema síðasti kass­inn, með til­drátt­ar­taug­inni. Björg­un­ar­menn sem komn­ir voru á strandstaðinn voru í óða önn að setja upp búnaðinn sem þangað var kom­inn. Slökkviliðsstjór­inn var nú einnig kom­inn á strandstað:

„Skip­brots­menn­irn­ir voru bundn­ir við hval­bak­inn og kölluðu stöðugt á hjálp. „Guð al­mátt­ug­ur. Komið fljótt og bjargið okk­ur!“ Þetta var hrika­leg aðkoma – sjö til átta vindstig og álands­vind­ur. Við biðum nú eft­ir síðasta kass­an­um og undruðumst hvað tefði hann. Þá komu menn með þau skila­boð að kass­an­um hefði verið snúið við sam­kvæmt skip­un frá mönn­um á hafn­sögu­bátn­um, sem töldu að þessi leið væri ófær en þeir gætu kom­ist Hauga­leiðina.

Þess vegna hafði verið farið með hann aft­ur að birgðabíln­um og þar var beðið frek­ari skip­ana. Nú var ekk­ert annað að gera en að senda hraðboða að bíln­um, þar sem kass­inn var, enda ekki tök á að koma boðum öðru­vísi til mann­anna þar sem ekk­ert tal­stöðvar­sam­band var á milli. Hraðboðinn fór með þau skila­boð að koma ætti þegar í stað með kass­ann þá leið sem í upp­hafi var áformuð. Meðan á þessu stóð var allt und­ir­búið sem hægt var, meðal ann­ars voru tvær línu­byss­ur út­bún­ar til að skjóta úr ef ekki tæk­ist að hæfa í fyrsta skoti.“

Sig­urður Þ. Jóns­son, sem starfaði hjá Vest­manna­eyja­höfn, þekkti vel áhöfn­ina um borð í hafn­sögu­bátn­um:
„Lóðsinn hafði gefið þær upp­lýs­ing­ar í gegn­um loft­skeyta­stöðina að betra væri að fara fyr­ir sunn­an Eld­fell og þar niður yfir Páska­hraun og svo þaðan niður eft­ir. Þau skila­boð bár­ust aldrei til okk­ar. Hjálp­ar­sveit skáta og fleiri komu því seinna á strandstað en þessi fyrsti hóp­ur. Þeir lentu í bölvuðu klöngri á þess­ari leið, sem var langt­um snún­ara að fara. Nú fóru menn úr Björg­un­ar­fé­lagi Vest­manna­eyja að gera sig klára til að skjóta lín­unni um borð. Þrífót­ur fyr­ir stól­inn var sett­ur upp og gerður klár. Guðjón Jóns­son var sá sem átti að skjóta línu um borð.“

Fjór­ir í mis­kunn­ar­lausri ágjöf
Strandstaður­inn var við svo­kallaða Presta­bót, milli flug­vall­ar­ins og Urðar­vita. Það voru fimm til sex vindstig, rign­ing og sunnanog suðaust­an­brim, og það braut jafnt og þétt á skip­inu. Það rétt grillti í belg­ísku skip­brots­menn­ina sem stóðu á hval­bakn­um, eina hluta skips­ins sem virt­ist ekki fara al­gjör­lega í kaf í brot­un­um. Menn­irn­ir hurfu annað slagið sjón­um björg­un­ar­manna sem voru uppi á þver­hnípt­um klett­un­um.

Þegar þrír menn voru komn­ir upp á hval­bak­inn, þeir Roland, Daniel og Red­gy, reyndi Marcel An­seeuw, elsti maður­inn um borð, fimm­tug­ur, að kom­ast upp stig­ann bak­borðsmeg­in. Þetta var mikið hættu­spil við þess­ar aðstæður því að Marcel var þung­ur, stirður og ótta­sleg­inn. Þegar hann var kom­inn úr skjól­inu í veiðarfæra­geymsl­unni og út á þilfarið kom þung alda sem kastaði hon­um til baka.

Marcel brá illi­lega við þetta. Hann var nú að upp­lifa sitt annað sjó­slys við Ísland. Tutt­ugu og sex árum áður hafði hann verið skip­verji á Vand­erweyd­en, sem fórst við Suður­land. Allri áhöfn­inni, átján manns, hafði þá verið bjargað.

Nú kraflaði Marcel sig til baka og fór aft­ur inn í veiðarfæra­geymsl­una. Gusta­af skip­stjóri var kom­inn út úr veiðarfæra­geymsl­unni. Hann var nú að missa skip í annað sinn á skip­stjóra­ferli sín­um. Tólf árum áður hafði hann misst skip við Skot­land, en þá hafði allri áhöfn­inni, tólf manns, verið bjargað.

Gusta­af fór að stig­an­um, orðinn mjög kald­ur og þrekaður, og las sig upp eft­ir hon­um. Marcel hafði hins veg­ar brostið kjark og ákveðið að fara hvergi. Hon­um stóð slík ógn af öld­un­um og ólög­un­um. Ungu dreng­irn­ir, Bart og Gil­bert, urðu eft­ir í bakk­an­um með Marcel.

Þegar skip­stjór­inn var kom­inn upp á hval­bak­inn kölluðu hann og þre­menn­ing­arn­ir sem þar voru fyr­ir niður til þeirra sem eft­ir urðu í bakk­an­um og hvöttu þá til að koma upp, björg­un­ar­menn væru komn­ir.

Belgarn­ir stóðu nú uppi á hval­bakn­um og biðu þess að hægt yrði að skjóta línu um borð. Þarna uppi var í raun eng­an veg­inn stætt og brimið barði menn­ina mis­kunn­ar­laust svo að þeir voru orðnir gegndrepa og mjög þrekaðir.

Slökkviliðsmann­in­um Guðmundi Ólafs­syni leið ekki vel þar sem hann horfði á skip­brots­menn­ina uppi á hval­bakn­um:
„Mér fannst skelfi­legt að bíða þarna þangað til hægt yrði að fara að gera eitt­hvað til bjarg­ar mönn­un­um. Þetta var heil ei­lífð.“

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search