40 ár liðin frá því að þeir lyftu bikarnum

Á dögunum komu saman Bikarmeistarar 1981 í tilefni þess að þann 30. ágúst voru 40 ár liðin frá því að þeir lyftu bikarnum.

Úrslitaleikurinn á sínum tíma var gegn liði Fram sem komst yfir snemma leiks en Eyjamenn hrukku í gang eftir um klukkustundarleik og Þórður Hallgrímsson jafnaði leikinn í 1-1 eftir það létu bræðurnir Sigurlás og Kári Þorleifssynir ljós sitt skína og lagði Kári upp 2 mörk fyrir Sigurlás og Eyjamenn komnir í 3-1. Framar klóruðu í bakkann á lokamínútunni og minnkuðu muninn í 3-2 og þar við sat. Kjartan Másson sagði í Morgunblaðinu frá því að berdreymin kona hefði haft samband við sig fyrir leik og sagt honum að hann þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur af þessum leik hann færi vel fyrir Eyjamenn. Eins og hefð er orðin að þá söfnuðust Eyjamenn niður á bryggju og tóku á móti Herjólfi þegar leikmenn sigurliðsins komu, skotið var upp flugeldum ræður haldnar og Samkomuhús Vestmannaeyja bauð síðan öllum bæjarbúum á dansleik í kjölfarið.

Á vefsíðu ÍBV þakka þau þeim fyrir komuna og skemmtilega upprifjun.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is