Föstudagur 16. október 2026

Hafnarfjarðarmótið í handknattleik karla hófst í gær á Ásvöllum

Haukar unnu ÍBV í upphafsleik Hafnarfjarðarmótsins í handknattleik karla á Ásvöllum í Hafnarfirði í gærkvöldi.

Leikurinn endaði 33:32, eftir að hafa verið þremur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 17:13 það var handbolti.is sem greindi frá.

Haukar byrjuðu leikinn mun betur en ÍBV og voru m.a. komnir með fimm marka forskot, 7:2, eftir tíu mínútna leik. Eyjamenn hertu upp hugann eftir leikhlé og sóttu í sig veðrið. Ekki síst gerði 5/1 vörn ÍBV-liðsins Haukum oft gramt í geði.

Fimm mörk ÍBV í röð í síðari hálfleik varð þess valdandi að liðið komst yfir, 24:23, þegar 16 mínútur voru til leiksloka. Eftir það skiptust liðin á um að vera með yfirhöndina. Var forskotið annars hvors liðsins aðeins einu sinni umfram eitt mark á annan hvorn veginn. Haukar voru tveimur yfir, 33:31, á síðustu mínútunni áður en Ívar Bessi Viðarsson skoraði 32. mark ÍBV rétt áður en leiktíminn var úti.

Mörk ÍBV: 

  • Dánjal Ragnarsson 7
  • Elmar Erlingsson 5
  • Dagur Arnarsson 4
  • Sveinn Jose Rivera 4
  • Nökkvi Snær Óðinsson 3
  • Arnór Viðarsson 2
  • Andrés Marel Sigurðsson 2
  • Gabríel Martinez Róbertsson 2
  • Ívar Bessi Viðarsson 2
  • Janus Dam Djurhuus 1.

Varin skot:

  • Petar Jokanovic 6
  • Andri Snær Sigmarsson 1

Næstu leikir íBV á mótinu eru:

  • 24. ágúst kl. 18:00 FH-ÍBV
  • 26. ágúst kl. 17:00 ÍBV-Stjarnan

Öllum leikjum er einnig streimt beint á sjónvarpsrás Hauka: https://www.youtube.com/user/HaukarTV

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search