Freyja Önundardóttir er þriðji listamaður sem Listasafnið dregur fram í jóladagatalinu að þessu sinni.
Og eins og Steinunn Einarsdóttir sem opnaði jóladagatalið og Finnur teiknikennari sem var kynntur 2. desember þá er listamaður dagsins einnig Vestmannaeyingur.
Freyja er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum, dóttir Unu Elíasdóttur frá Varmadal en býr og starfar á Þorshöfn.
Freyja hefur haldið fjölda sýninga í Eyjum. Málverk dagsins, Maður frá 1993, var upphaflega á sýningu í Akóges árið 1994 ásamt fleiri flottum listaverkum en yfirgaf aldrei Eyjarnar aftur.
Frábært verk frábærrar listakonu.


